Hey, hafiði tekið eftir að það er nánast Riminiveðurfar í Nabblanum þessa dagana. Maður fær bara heimþrá.
Gaman að segja frá því að ég á eftir að vinna í 2 daga, þá er ég komin í sumarfrí, jibbý. Verður sá tími notaður vel við massívar línuskautaæfingar, 7 ára nágranna mínum lísta bara ekkert á hvað ég er léleg á skautunum, en ég skal sko sýna honum.....
Ég er ekki að reka mig harkalega á að fólk sé að þiggja þessi endalausu heimboð okkar, finnst ykkur við leiðinlegar eða...?? Nei, þegar ég hugsa mig betur um sé ég að það getur nú bara ekki verið, ástæðan hlýtur að vera önnur. But anyways, allir velkomnir, vonandi fer maður nú að sjá feisið á einhverri ykkar, fara ekki allir norður um Versló, hvernig er það, ha ha ha.
En krúttin mín, best að hætta þessu, það eru hvort sem er ábyggilega engir nema sambýlingar mínir sem lesa þetta, until next time, Bebbuskott |
posted by Kristin @
9:28 f.h.
17.7.03
Jæja best að láta Bebbu ekki vera eina um þetta.......veerst að ég hef ekkert að segja.....hummmm
Okei þá bý ég bara til e-ð skemmtilegt slúður, Bebba er ólétt og Kristín er að fara flytja til Íraks til að ná pennavíni sínum til margra ára úr fangelsi þar. Ég vann í síðast víkinga lottói og er því hætt í vinnunni, er að hugsa um að kaupa Perluna og útbúa sætt og notalegt sumarhús úr henni eða hreinlega opna þar klaustur og verða yfirnunna. Hei þetta er bara gaman :D.......æji ég datt úr gír. Well to be continued later over and out Sonja |
posted by Kristin @
9:57 f.h.
10.7.03
það er bara sólóblogg hér í gangi, er ég sú eina sem hef ekkert að gera í vinnunni eða hvað???
Nei, það er nú bara rólegt hjá mér núna fram að lokun, já ég fæ óvænt tveggja vikna sumarfrí því pleisinu er hreinlega lokað síðustu vikurnar í júlí og framyfir versló. Það er reyndar mjög fínt að fá þetta frí þó maður hagnist nú ekki á því fjárhagslega. En eftir frí fer allt á fullt og sést sennilega ekki til sólar fyrr en í jólafríinu (ég er strax farin að hlakki til þess, engin prófskita,ekkert stress, bara bakstur og föndur, jei). En við stöllur erum semsagt fluttar á Háteigsveg 52, endilega kíkið í heimsókn og með litlum fyrirvara er hægt að panta gistingu ef fólk hefur áhuga á því, eina skilyrðið er að redda okkur karlmönnum í staðinn :) litli 7 ára nágranni okkar heldur nebblega að við séum lessur af því að við eigum ekki menn. En best að fara að skrifa skýrslu, kíkið endilega í sunnudagskaffi bæbæ bebba |
posted by Kristin @
1:25 e.h.