Italy there we went  

We are back home from Rimini!!!

Bloggarar

Valva beib


Ýmislegt

Unak.is

Broskallar


Veðrið a Rimini

The WeatherPixie


Gamalt blogg


 
Æ hef teiken óver ðí blogg.....múhahahahahahaha
Valva bloggbeib
|
  posted by Kristin @ 3:09 e.h.


28.5.03  

 
Góðir hálsar nær og fjær......
Þegar þetta er ritað er um það bil einn sólahringur þangað til ég verð komið suður yfir heiðar og um tveir sólahringar þangar til ég verð komin til ÍTALÍU............arggggggggggg, híhíhíhíh, ahahahahha, brurrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr........þetta er semsagt bara að gerast :) mig hreinlega skortir orð til að lýsa hrifningu minni þótt ég eigi eigi úr fleiri orðum að moða en meðal Íslendingur og læt því broskall duga og bæti við x2000. Þetta verður því væntanlega í síðasta sinn sem ég rita hér áður en ég fer að svolgra í mig Sangríu og bora tánum ofaní sandinn og horfa á sætu strákana...
Elsku kellur, it is happining, sí jú in Leifur Eiríksson.
Over and out Scoonja
|
  posted by Kristin @ 3:53 e.h.


25.5.03  

 
4 dagar í Reykjavíkur ferð!!!!!!!!!!!!!!!!! sem þýðir 5 dagar í RIMININININI....................!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!jibbbbbííííí GLÆSÓ SMÆSÓ hvílík og önnur eins snilldar ferð hefur aldrei verið farin!! stanslaus glaumur og gleði í 2 vikur;)
Jahú.. Heyrðu Dagga ég var líka Nadine treilortrash!! pældíðí, hún sem er svo óþolandi í þáttunum, hóst hóst ekki það að ég horfi á þættina hummm.... en ení veis,
Sonja prófaðu dutyfree.is ýmsar hentugar upplýsingar er þar að finna! ég hef svoldið verið að velta fyrir mér hvort það sé heppilegra að kaupa hreinlega vodkaflösku í fríhöfninni eða hvort þær séu ódýrari úti?? er einhver búin að kynna sér þetta? ef svo er endilega látið mig vita;)
vell vell ég sit hérna og klóra mér í hausnum og anus til skiptis og dettur ekkert í hug að skrifa
Er ekki stemming fyrir júróvisíon um helgina??? kíkið á eurosong.net það er að segja ef þið hafið dauðan tíma... he he en annars ER eitthvað djamm stuð á liðinu um helgina???
kveðja frá Stínu Rímínu
|
  posted by Kristin @ 2:50 e.h.


21.5.03  

 
Hæ hæhhææhæhæhæ Það er alltof stutt í þetta, getum við frestað þessu um viku, ég hef alltof mikið að gera:) Er að halda barnaafmæli og standa í endalusum breytingum.......Og þó, ég held ég haldi mig við að fara á tilsettum tíma.....er reyndar frekar döpur þar sem það er aðeins 17 stiga hiti í dag á Rimini. Er búið að kaupa sólarvörn 30, after sun 20 og aloe vera 100.....er þetta ekki eitthvað c.a þannig. En sem sé er ekki byrjuð að pakka og veit ekkert hvað ég á að taka með mér....er að pæla í að taka bara tóma ferðatösku með út....gamla settið var jú að lauma að mér smá styrk....þannig um að gera að EYÐA EYÐA:) O well hef svo sem ekkert að segja .....Hlakka bara rosalega til þegar þetta verður endanlega búið og hægt verður að fara SLAPPA af..."maður verður að slappa af" bein vitnun í Traust og Trygg... sem eru tveir hundar sem Snædís hlustar ansi oft á. Jú jú þegar maður er mamma þá kann maður allt svona og þekkir ekki hljómsveitir eins og Scooter eða eitthvað svoleiðis.....:) Jæja er þetta ekki að verða ágætt hjá mér.....see you on friday... Verð að fara æfa mig í enskunni, ætti bara að flytja kannski fyrirlesturinn á ensku....það væri nú sniðugt...eða hvað? Jæja verð að fara taka töflurnar.....SEE YOU SOON WHEN IM BROWN kveðja Nadine
|
  posted by Kristin @ 9:20 f.h.



 
S.O.S mig bráðvantar að finna heimasíðu fríhafnarinnar :) ...tíhíhí ...endilega látið vita ef þið hafið rekist á hana..
Scoonja
|
  posted by Kristin @ 9:11 f.h.



 
Ok ég veit ekki hvað það voru margir dagar þegar við byrjuðum að telja niður í þessa ferð, en það eru margir dagar síðan og það er enn vika í þetta. Ég er bara hætt við að fara, ég nenni ekki að bíða lengur.

Nei, nei bara svona nettur djókari hjá mér. Annars er ég í vandræðum með hvað ég á að taka með mér, ég sé að það er tilboð á steiktum lauk og sinnepi í Nettó, skildi borga sig að kaupa það þar og taka það með sér? Hjálp, somebody shoot me, húmorinn er hér með skriðinn á lægsta plan, best að hætta meðan ég hef enn smá virðingu, sjáumst á Leifstöð, B
|
  posted by Kristin @ 11:02 e.h.


20.5.03  

 
p.p.s. ......lalalal...ég fer í fríið, ég fer í fríið, ég feeerrrr í fríið, lalalalalal.............á Ítalíu er gott að djamma og djúsa diskótekunum á ....HEI.......
Sonja going nuts
|
  posted by Kristin @ 11:18 f.h.



 
P.s eftir eina viku verðum við í flugvélinni á leið í .................
Sonja
|
  posted by Kristin @ 11:17 f.h.



 
Ahhhaahaa, vííííhhhhaaaaa, jabadabadu, höööööööööhöhöhöhö............................þið vitið ALLAR hvað ég er að tala um ....spring spring af spenningi.
Whats out Italy because we are coming..............
Cio bella bambino, sotto il sole ala rimini
AAaaaaarggggggg Sonja
|
  posted by Kristin @ 11:15 f.h.



 
ATH áríðandi tilkynning.........
Dagný er Nadine Cooper Lewis: Thu ert fyrrverandi trailer trash sem giftist upp fyrir thig og ert stanslaust ad reyna ad thoknast kallinum thinum, sem vill samt bara skilja vid thig. Thu ert ekki allt of gafud og reynir ad baeta upp fyrir gafurnar med ymsum radum, en yfirleitt til einskis.
Sonja og Sísý eru Alexandra Spaulding: Þær eru voldugustu konurnar i baenum! Svifast einskis, eru rikar og voldugar og geta fengid hvad sem þær vilja! Þær áttu fallegan son sem do en thegar kom sidar ljos ad þær áttu i raun tviburasyni tha reyndu þær ad gera allt til ad vinna hinn (lifandi)son thinn yfir a sitt band, og ad sjalfsogdu tokst thad ad lokum.
Sandra, Helga Jóna og Milla eru Harley Cooper: Þær eru uppreisnarseggir og villingar! Skyrdar eftir Harley Davidson motorhjli, fylgja engum reglum og gera thad sem thær vilja. Okkar veika hlid eru karlmenn, höfum gifst nokkrum sinnum vegna astar, en thad hefur aldrei gengid upp. Erum hins vegar mjog skotnar i nuverandi kaerasta okkar, sem er lögga alveg eins og við. Vonandi bara ad hann fai aftur tilfinningu i lappirnar eftir sprenginguna...
Vilja fleiri djón uss? Tékkið á www.valvabestaskinn.blogspot.com
|
  posted by Kristin @ 3:34 e.h.


19.5.03  

 
Vvvvvvíííííííííí´hhaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa...............er nokkuð þörf á að segja meira !?!............rimini nálgast óðfluga :) og eftir viku verðum við að pakka og koma okkur suður. Varðandi síðustu helgi......allir þeir sem ætla aldrei að drekka aftur lyfti upp hönd...........hehehehehh, DJÓK....:)
Þið sem vissuð það ekki þá er Sandra orðin formlega krimmi......það fannst löggunni allavegana sem stoppaði hana aðfaranótt laugardags...híhíhí.
Aufwiedersehen, und um das klar zu stellen, das Techno lebt !!!!!!!!!!
|
  posted by Kristin @ 11:16 f.h.



 
Jæja sælar stúlkur....nú fer að styttast í þetta, þvílík stemming. Ég er orðin ekkert smá spennt, hlakka til að fá smá lit í kinnarnar. En sem sé Milla og Sonja sofandi og ég ein mætt....hugsa að það verði lýsandi fyrir Rimini....Þær sofandi og ég úti í sólbaði:) Jabadabadú.......En sem sé bara fyrirlesturinn eftir og svo bara eintóm sæla eftir það. Hlakka til að fara slappa af og einbeita mér af brúnkunni..... Þarf að fara versla mér sólarvörn 30 að minnsta kosti ef ég á ekki að verða brunarúst....Fór í smá sólbað á föstudaginn og brann... það veit ekki á gott... En stefni bara á að maka mig af sólarvörn og þá get ég flatmagað af vild. En hef svo sem ekkert að segja meira svo ég heyri bar aí ykkur síðar ef ekki þá sjáumst við á RIMINI:)
Kveðja Dagný
|
  posted by Kristin @ 9:50 f.h.



 
Vá, það er svo langt síðan ég hef bloggað að ég veit bara ekki hvort ég kann þetta lengur. Það er greinilegt að nýjabrumið er að mestu rokið af þessu hjá okkur, enginn svo mikið að nenna að tjá sig hér inni lengur, en maður reynir. Ég var að koma úr nettri ítalíuupphitun, eyddi góðum 4 klukkutímum í sundi í steikjandi sól. Núna sit ég hér í rauðum bol og það er bara erfitt að átta sig á því hvar bolurinn endar og ég byrja, slíkur er roðinn á handleggjunum. Eins er eins og það sé e-r sviðalykt í loftinu, veit þó ekki hvort hún er af mér eða.... Ástandið er orðið þannig að ég ræð mér engan vegin fyrir spenningi lengur, loftið er orðið magnþrungið og ég veit bara ekki hvernig ég á að vera. En þetta styttist og styttist og áður en við vitum af verðum við farnar að berja gólfin á þriggja hæða diskótekinu sem Stína fann á netinu, heitir Carnaby diskó og er bara stórt og skemmtilegt. En best að fara heim í jógúrtbað áður en ég fer að hafa hamskipti sökum bruna hérna, skemmtið ykkur vel þið sem eruð að fara á djammið, bæjó Bebba brunarúst
|
  posted by Kristin @ 3:09 e.h.


16.5.03  

 
Hellú leidís...
Langt síðan mar hefur bloggað og sonna, gamanaðessu.... en af mér er bara allt ljómandi að frétta, ég skilaði svo sem eins og einu stykki lokaverkefni á föstudaginn seinasta og hef verið hálf eirðarlaus og furðuleg (meira en vanalega) síðan!!!! Mér finnst bara hreinlega eins og eitthvað vanti;---/ En það hlýtur að líða hjá eins og allt annað og ég get farið að tileinka mér hið góða og eftirsótta letilíf. En í því felst að vera í sömu svettpentsunum í amk viku (án þess að þvo þær) og horfa á óstöðvandi tónlist á skjá einum þar til 5-6 á morgnanna;--) en neits mar það er ennþá eins og eitt stykki tímaritsgrein sem ég á eftir að gera og þá er ég ekki að meina bara mig, Bebba hjálpar til, he he... nei nei
Eb voruð þið búnar að gera ykkur grein fyrir að á þessum degi eftir tvær vikur verðum við á leiðinni í borg tækifæranna og tilbúnar að fara til RIMINI, það er að segja ef það verður ekki búið að aflýsa ferðinni sökum lungnabólgunnar;--) en nei nei við förum samt EKKERT svartsýnisraus hérna..
En ég hef bara andsk.. ekkert að segja. Jú ég fór á myndina How to lose a guy in 10 days í gær og hún er æðisleg, ekta stelpumynd og mér fannst hún mjög fyndin, mæli með henni! en þið Bebba Sonja og Milla hafið kannski ekki smekk fyrir henni þið eruð svo miklar mattsjó vonnabí í myndum kellingar en allavegana... HÚN er skemmtileg og hann er bara sætur... uuummmmm.... hann er bara flottur þegar hann fer úr að ofan jæks..
Gangi ykkur vel með þessa líka skemmtilegu tímaritsgrein og allt og allt sí jú aránd, kv.- Stína Rímína (bakk from ðe ded=)
|
  posted by Kristin @ 3:57 e.h.


12.5.03  

 
Hei skvísur
Ég er að lenda í stóru reality shock-i.............vááááá loksins hef ég tíma til þess að fara hugsa um að ég er að fara flytja suður á nýjan stað og byrja í nýrri vinnu .......oh my good....hvað var ég að hugsa..........af hverju skráði ég mig ekki bara í e-ð annað nám hérna á Akureyri !!!!! ........PANIC...........
good bye crew og venlig hilsen Sonja
|
  posted by Kristin @ 1:20 e.h.



 
Jæja elsku dúllurnar mínar, ekki seinna vænna en að fleiri fari að skrifa á þetta blessaða blog. Því nú fer dögunum fækkandi. Er nú komin á átak dauðans..... veit ekki hversu lengi það verður...en er á meðan er....:) Sem sé ef maðru a´aða láta sjá sig í bikini þá verður maður nú að reyna bretta bumbuna inn og slétta úr appelsínuhúðinni:) En stefnan er samt bara að vera sem fyllst og þá er manni alveg sama hvernig maður lítur út....hí hí. En sem sé hef ekkert að segja, ólýsanlegur feginleiki yfir að vera búin að skrifa en þó ekki alveg búið..... En sem sé hlakka til að flatmaga á ströndinni og gera akkúrat ekki neitt.....ok er bara að bulla og hef ekkert að segja....bara friða samviskuna með því að skrifa nokkrar línur...

Kveðja Dagga sól
|
  posted by Kristin @ 1:16 e.h.



 
Yfir o út o aftur til þín Bergþóra / Milla :)
|
  posted by Kristin @ 6:56 e.h.


10.5.03  

 
yfir og út o aftur til þín Bergþóra hihi /milla
|
  posted by Kristin @ 6:55 e.h.



 
Bleeeeesaðar ESSGUDDNAR mínar, jæja loks er ég vöknuð til lífs aftur, long tæm nó sí sko, komin tími til að gera eitthvað annað og fara að huga alvarlega að því sjálfur að gerast áfengisneytandi og ef illa fer þá höfum við góð rök fyrir því að iðjuþjálfar eigi heima á þessum starfsvettvangi o þá reddast þetta allt saman, hi hi. og bæðevei þá er þetta hér með í síðasta skipti sem ég nefni þessa damn ritgerð á þessu bloggi, now its tæm 4 having fööööööönnnnn, jíha. SAUTJÁN dagar í Rimini, ha Helga baby þú getur enn hætt við að hætta við, ég mana þig ones in a læftæm, kom onn!!!! 29 stiga hiti í gær o fer ávallt hækkandi, lítur allt út fyrir að við munum liggja í sælunni á ströndinni með einn kaldan í hægri o annan heitann í vinstri (hi hi got it). annars er ég búin að segja ykkur hvernig ég pitctjöra ítalana o það er ekki fögursjón en.....væntanlega fleiri túristar en við. fyrir þá sem náðu þessu ekki hérna áðan o þar með talið ég, þá eru 17 dagar í þessa snilldar ferð... og rúmlega 17 mín í að ég fari heim og hefji upphitun og til að fitta nú í bikiníið þá verður LÆT bjór í kvöld, let jú know há it taste tomorrow eða kanski bara á mánudaginn, hmm bíst við að morgundagurinn fari mest í thynnku......hmm hver var það sem sagði að mar ætti að læra af mistökum sínum. hihihi later.
kiss kiss í bili er farin að rokka feitt í nýja sæta bolnum mínum/ Milla rokk
|
  posted by Kristin @ 6:54 e.h.



 
Þetta er rosalegt, hitinn að komast í 27 gráður og allt á suðupunkti, nú ef þetta heldur svona áfram verður kominn 100 stiga hiti þegar við förum út, stefnir í að við verðum útfjólubláar við útskriftina. En er það ekki bara kúl, svona í stíl við Fneger? Af mér er annars allt gott að frétta, er bara heima að berjast við aðskilnaðarkvíða, barnið flutt að heiman þ.e. ritgerðin í prentun og hún verður bara að plumma sig á eigin fótum héðan í frá, ég er búin að gera það sem ég get. Ég er líka byrjuð að pakka og ég pakkaði bara öllum möppum og skóladóti niður og ætla ekki með það suður, það kemur bara ekki til mála. Ég myndi hvort sem er ekki gera neitt með það, nema kannski skeina mér á því ef svo illa færi einhverntímann að Háteigsvegurinn yrði pappírslaus. Nú, mér finnst ég soldill sólóisti hérna á þessu bloggi núna svo ég heiti því að skrifa ekki meir fyrr en e-r annar er búinn að skrifa allavega einu sinni og þá er ég bara að hugsa um velferð ykkar. Endilega látið vita ef þið eruð á lífi krúttin mín, sjáumst á morgun hjá Láru eða á Bláu könnunni, bæjó Bebba
|
  posted by Kristin @ 11:03 f.h.


8.5.03  

 
Stelpur stelpur, believe it or not, það er kominn 25 stiga hiti á Rimini. Allt er svo gott, blessuð ritgerðin bara að fara í prentun, sólin skín og ég er bara að reyna að breiða yfir að að mér er að læðast ofsakvíðakast. Nú er ég ekki búin að hugsa um neitt í 2 mánuði nema þetta verkefni og þegar ég sé fyrir endann á því fer ég bara beint í að hafa áhyggjur af öðru. Ég er að fara að flytja, byrja í nýrri vinnu, vera orðin eitthvað, ekki bara vera í áhyggjulausum sumarafleysingum og svona mætti lengi telja. En svo vill til að ég er ekki að fara að standa í þessu ein, svo sennilega verður hægt að fá smá pepptalk :) En elskurnar mínar, bara best of luck á lokasprettinum, það erum bara 50 metrar eftir, you can do it, go go go. Bebba
|
  posted by Kristin @ 9:10 f.h.


7.5.03  

 
Já, það er satt sem maðurinn sagði, time is fun when you´re having flies, bara 3 vikur til stefnu. Mér skylst að ég eigi að skila einhverri ritgerð í prent á morgun, ég vona bara til guðsins að hún sé tilbúin, ekki hef ég gert neitt í henni. En allaveg, maður spottar bara aðra lokaverkefnislausa helgi, ég veit ekki hvernig það fer, þetta hlýtur að enda með ósköpum, kosningadjamm og læti. Gott í bili, Bebbuskott
|
  posted by Kristin @ 9:04 f.h.


6.5.03  

 
JÚHÚ!!!! 21 DAGUR TIL RIMINININININ...... VEI VEI VEI VEI VEI VEI VEI VEI
|
  posted by Kristin @ 4:32 e.h.


5.5.03  

 
Bara að tryggja að fólk sé örugglega að gera sér grein fyrir að það er bara einn dagur þangað til það eru 3 vikur í brottför til Rimini. Nú, hitinn þar er kominn í 23 gráður, ekkert til að hrópa húrra fyrir en á sennilega bara eftir að aukast. Ég hef ekki enn komist yfir neinar tölur sem sýna sjávarhita en köldum sjó er nú sennilega hægt að bjarga með albúningnum hennar Dagnýjar, hann hlýtur að sjá manni fyrir hita eins og öllu öðru. Mér persónulega finnst nú orðið ögn léttara yfir hópnum, það ríkir ekki þessi móðursýkislega örvinglan og histería lengur. Við erum að sigrast á þessu og stöndum okkur vel. Ég er ekki mikið fyrir maraþonblogg svo ég læt staðar numið, sé ykkur seinna (syngist með laginu sem Tommi tómatur söng í Fóstbræðrum), Bebba
|
  posted by Kristin @ 1:10 e.h.



 
OK þetta er viðbjóðslega fyndið, segir þetta ekki allt um hversu sad ástandið er að verða hér hi hi hi hi. já já sammála Sonju loks er mar orðin samræðuhæfur á ný.... hjúkk mar þetta var ekki að ganga lengur að vera svona leiðinlegur.ennnnn víííííííííí bara plúsar farmaundan og feitt massa djamm djamm í kvöld með uppáhaldsstelpunum mínum...iðjupæjunum!!!!!!!! hlakka til að hitta ykkur í kvöld babes kveðja Milla
|
  posted by Kristin @ 3:09 e.h.


3.5.03  

 
Well o well ....þá er ég loksins orðin viðræðuhæf aftur. Hér kom upplýsingar frá hótelinu sem við verðum á, á Ítalíu sem við hljótum að geta nýtt okkur og þá sérstaklega tékklistann :)

Fyrir þig sem ert á leiðinni til Rimini er mikilvægt að hafa nokkur atriði í huga.

Landslög kveða svo á um að allar strandir Ítalíu skulu vera reyklausar og þar er þitt/ykkar hótel engin undantekning. Þess vegna er búið að útbúa skýli utandyra fyrir þá hótelgesti sem reykja. Hafa skal í huga oft eru vorin köld á Ítalíu og því gott að hafa meðferðis hlý nærföt til að klæðast innan undir náttfötin sem gestum hótelsins er skylt að vera í.

Tekið skal fram að Verslun er rekinn á hótelinu og er hún opin virka daga milli 13.00 og 15.00. Af gefnu tilefni er bent á að þar eru ekki seldar sígarettur heldur verða hótelgestir að útvega sér þær sjálfir. Það skal einnig bent á að þvottahús er starfrækt á hótelinu og geta gestir farið með þvott þangað milli kl 9.00 og 16.00 virka daga.

Einnig skal tekið fram að gefnu tilefni að samkvæmt reglum hótelsins er ekki leyfilegt að koma með eða fá senda bangsa eða önnur leikföng og ekki er æskilegt að mæta með GSM síma eða útvarp.

Nauðsynlegt er fyrir gesti hótelsins að hafa eftirfarandi gátlista í huga við undirbúning komu:

nærföt og sokka
ullarnærföt til að nota innan undir náttföt
inniskó
snyrtidót
pening fyrir símakorti og/eða sælgæti
sígarettur
bækur eða annað lesefni

Bæjó í bili Sonja (sem verð örugglega kærð fyrri þennan lista.......hehehe)

|
  posted by Kristin @ 4:21 e.h.


2.5.03  

 
JÆJA KEDDLINGAR, þá hefur loks einn af þessum mörgum föstudögum ákveðið að feisa okkur.....hjúkk mar hélt að þetta mundi aldrei enda, EN nú tatatatammm fara hlutirnir að gerast...já já já farið að snjóa á Ak o allir í góðum gír. frekar fyndið samt það er meira snjór núna en á the hólý páskum, kannski fer bærinn loks að fyllast af lambakjöti sem hægt er að klípa í, eða.......ekki...well well lambakjöt sí ja in Italy :) en svo við skellum okkur nú aftur í föstudagsfílinginn þá eru hlutirnir þokkalega að gerast núna......lesið fyrra blogg þar sem föstudagarnir fáu voru taldir......nú er ekki langt í að við komumst á feitt djamm o eins Anna G var að baula út úr sér þá er ONLY 24 dagar eftir, haha sjúgið á því :) sjúmst í feitum gír sem allra fyrst tjúddilú Milla MassawannaB
|
  posted by Kristin @ 8:40 f.h.


Powered By Blogger TM
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com