Italy there we went  

We are back home from Rimini!!!

Bloggarar

Valva beib


Ýmislegt

Unak.is

Broskallar


Veðrið a Rimini

The WeatherPixie


Gamalt blogg


 
Heil og sæl góðir hálsar hvar sem þið eruð í heiminum.
Að vel ígrunduðu máli þá er ég að hugsa um að taka þeirri áskorun um að bandabrókssundið góða verði gert að árlegum viðburði :) Sundið mun kallast bandabróks-frelsis-sundið og verður á hverju ári í kringum 19.júli helst í Skorradal en önnur ferskvötn koma samt til greina. Öllum kellingum er velkomið að taka þátt, eina skilyrðið er að sjálfsögðu að synda í bandabrók!!!! Þátttakendur ákveða sjálfir hvort þeir fá sér frostlög, en tekið skal fram að mótshaldarar taka enga ábyrgð á þátttakendum. Skráning er hafin.......
Lifið er dásamlegt, Sonja
|
  posted by Kristin @ 4:23 e.h.


29.2.04  

 
.........
Þá er enn einn föstudagurinn runninn upp ljós og fagur....víííí og við aðal-háteigsvegsgellurnar á leiðinni norður yfir heiðar :) í dekur til mömmu, sumir reyndar aðeins götóttari og fölari en síðast (greyjið hún Bebbí). Ég ætlaði nú bara að nota tækifærið og auglýsa eftir skvísum til að koma með á íshokkíleik sem verður laugardaginn 6. mars kl:18.30 í Laugardalnum. Þar gefur að líta margt hreystimennið og karlmennskan verður alveg í TOPPI.....haba haba :p get alveg lofað því. Hvað er heitara en sveittir karlmenn að berja hvern annan með kylfum !?! það verður hreinlega ekki heitara.....þannig að ...kommmma sooooo
Annars er nú allt meinhægt að gerast, stefni á skagfirska sveiflu á lau kvöldið og læt ykkur vita síðar hvort það er eitthvað nothæft að finna í skagenfjörðen.....og svo þarf ég náttúrulega að testa þennan fína búnað sem ég keypti á einu besta sjopping spríi sem ég hef lent í lengi...tékka á því hvort hann er íshokkí-kulda-þolinn. Ég hef aldrei á ævinni lent í því áður að geta ekki haft stjórn á peningaeyðslunni minni.....en djöfull er helvíti gott að versla og eyða peningum....ætli það sé ekki eitthvað tengt því þegar tilfinningar manns eru eins og góður rússíbani....lifið er dásamlegt :)......dauði og djöfull :(...lífið er dásamlegt :)....dauði og djöfull:(......o.s.frv.
best að hætta öllu bulli, over and out. Auf wieder sehen, Sonja
p.s. þar sem við erum að auglýsa eftir einhleypum mönnum á þessari síðu er þá ekki bara nauðsynlegt að einhverjir aðrir en við kellingarnar séum að lesa þetta...hummmm....good point.

|
  posted by Kristin @ 2:17 e.h.


27.2.04  

 
Grítings örþ-língs...
"Þessi lilja er mín lifandi trú, hún er ljós mitt...." Jæks.. þetta lag er á fullu í hausnum á mér! Hefur einhver heyrt á það minnst? svo ekki sé meira nefnt? En ég er semsé á Vitatorgi þar sem ég var frammi í sal og við vorum að syngja í hvorki meira né minna en .. klukkutíma! Smá orkusuga! ekki síst þegar ekki er sungið annað en sálmar og eldgömul kvæði um ástfangið fólk! ÞOLI EKKI ÁSTFANGIÐ FÓLK!!! heheh.. bara djók.. ég er bara öfundsjúk.. (og það ekki lítið!) en minn tími mun koma;-) vonandi allavegana og ef einhver einhleypingur les þetta (karlmaður þ.e) ENDILEGA hafðu samband;---) hehe..
En að öðru.. Ég er semsé að hugsa um að bregða mér norður yfir heiðar og kíkja aðeins á eyrina um helgina! hef heyrt að þar geti verið gaman að skemmta sér og fá sér kannski aðeins í aðra stórutána... En um næstu helgi verður kominn mánuður frá því að ég fór síðast á djammið!!! pælið í því... dugleg er hún! hún stína:-) bíðiði aðeins.. ætla aðeins að klappa mér á bakið.............................. já ég er komin aftur! en að öllu spaugi gömnuðu.. þá býst ég við rífandi stemmingu um helgina og endilega allir sem vettlingi geta valdið..--->> Smellið á ykkur danstúttunum og drífið ykkur út á lífið!!!!!!!!!
En jæja er að hugsa um að segja þetta gott þar sem andinn er ekki alveg yfir mér! hann var hérna áðan en svo skrapp hann fram.. mér sýndist hann fara inn í kaffistofu, en ég er ekki alveg viss... tromm tromm tromm.. ok slæmur ...;-/
En hafið það sem allra best og meira bara síðar!!!
Kveðja frá Bjart-Stínu..
p.s endilega blogga... blogga, blogga, blogga...

|
  posted by Kristin @ 11:28 f.h.


25.2.04  

 
Tek undir með síðasta bjartsýnis-ræðu-skrifara ......húrra húrra það er kominn föstudagur . Því miður virðist ekki vera komin nein endalok á þurrktímann minn :( , en minn tími mun koma. Sakna Kalla Bergs alveg rosalega en minningin frá síðustu fitumælingu styrkir mig í því að halda mér frá áfengisbölinu :P
bestu kveður og lifið heil, kveðja Skonjan
|
  posted by Kristin @ 2:20 e.h.


20.2.04  

 
Jæja jæja jæja...
Merk tímamót eiga nú sér stað.. en undirrituð hefur ekki hripað niður á bloggið síðan miðsumars á síðasta ári.. En þetta gengur ekki lengur og eftir nána umhugsun hef hún (undirrituð þ.e) komist að því að þetta er kjörinn staður til að tjá sig og sínar innstu.. en dónt vorrí þetta verður ekkert alltof persónulegt..
En hér með viðurkennist að þó að þú (Sonja) hafir réttilega unnið þér inn 3x50 (vell donn bæ ðe vei) þá hefur þú ekki, þá er ég að meina sonja sem slík, ekki fengið afhentar títt umræddar 3x50 kr. !! sett verður nefnd í málið og hún mun yfirfara þau gögn sem til eru, hlusta á vitnisburð þeirra sem voru á staðnum, til dæmis þegar bandabrókarsundið góða átti sér stað í skorradalsvatni;-) Þeir sem staddir voru í kringlunni þegar rúllustigahlaupið fór fram verða yfirheyrðir (en það verður lengi í minnum haft fyrir ótrúlega þrautseigju, úthald og þor.. )
en fyrir hvað var þriðji 3x50 kallinn? mér er spurn.. var það ormaátið?
En ekki nóg með það heldur skuldar hún (undirrituð) þér líka maxara.. sem er ófyrirgefanlegt! ætlaði að borga þér í gær! en stína lata með lítinn bata hefur ekki nennt út í búð... Gerð verður bragabót á því í dag... og jafnvel verða komnir á þetta vextir og skonjan fær annan maxara í sárabætur fyrir allan þann tilfinnanlega skaða sem hún gæti hafa hlotið..
En Skonja ég held bara að það sé nokkuð til í þessari kenningu hjá þér.. en tel þó að þetta sé persónubundið. Undirrituð hefur til dæmis aldrei og þá er ég að meina aldrei! farið og synt í köldu vatni á bandabrók.. né heldur hlaupið upp rúllustiga í Kringlunni af því að henni var lofaður fimmtíukall (sem að sumir ættu að vita af biturri reynslu að verður aldrei borgaður þrátt fyrir fögur loforð...) og hefur undirrituð ÞÓ verið tiltölulega lengur síngul en þú!!!!!!!
En málið er bara að reyna að lappa upp á gamla sálartetrið eftir langan og dimman vetur og njóta þess að nú fer að styttast í sumar og sól! Leiðir til að ná því markmiði gætu til dæmis verið að fara að sækja ýmsa íþróttaviðburði, fara á kaffihús, njóta lífsins og gera asnalega hluti og þá kemur þessi eini sanni (svífandi yfir ísinn, sem dæmi) og sópar þér af fótunum (í lauslegri þýðingu) og ekki reyna að telja mér trú um annað...!!!!!!!!!!!!!!!

En það er föstudagur í dag og síðasta helgin í þurrki! jei... hlít að meika það.. annars er ég í djúpum;-/ Það verður bara ennþá meira gaman næstu helgi;----) en dúllurnar mínar sem lesið þetta! hafið það gott og njótið þess að vera til.. lífið er of stutt til að sitja og láta það líða hjá.. (eikkað solleiðis...;-/)
En bæjó í bili
kv. Stína bjartsýna
|
  posted by Kristin @ 10:36 f.h.



 
Well o well, heilir og sælir lesendur bloggsins þ.e. Stína stuð og Bebba bali......
Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort það geti hreinlega verið að maður verður kú kú í hausnum á því að vera einhleypur !?! Síðan ég varð einhleyp fyrir nokkrum mánuðum síðan hef ég staðið sjálfa mig að því að vera gera hreint út sagt furðulegustu hluti. Mínu máli til stuðnings hef ég unnið mér inn 3x 50 kall á þessum tíma. Þar ber hæst sundið góða í Skorradalsvatni, reyndar ber að taka fram að þar var áfengi haft um hönd, nú svo hljóp ég upp rúllustiga kvöld eitt í Kringlunni sem var að fara niður ( ég komst næstum því ekki alla leið upp....svettí harrí) nú og svo át ég þennan próteinríka mat sem ég eldaði mér um daginn sem leit út eins og æla með ormum í. Upp á síðkastið hef ég verið að gera enn furðulegri hluti án þess að hafa neinn peningalegan ávinning af eins og t.d. að bíta mann og annann, slá þjálfara á rassinn (not my finest moment) og drekka kaffi.
Getur verið að einhleypt fólk hafi meiri orku afgangs sem kemur fram í þessari mynd? Ég til dæmis leiddi aldrei hugann að því á meðan ég var í sambandi hversu mikilvæg heimaleikfimin væri fyrir geðheilsuna. Mín kenning er sú að skortur á heimaleikfimi komi fram í auknum ósjálfráðum hreyfingum auk þess að ýta undir hvatvísi og dómgreindarskort. Sem sagt maður verður kú kú í hausnum! Ef þú ert á öðru máli og hefur betri skýringi þá skjóttu.
Nóg í bili, over and out, Sonja the single one
|
  posted by Kristin @ 10:40 e.h.


19.2.04  

 
Best að fylgja fordæmi sambýlings míns og blogga smá. Er þessa stundina í vinnunni að berjast við andlegan dauða því allt mitt vit hefur farið í skýrsluskrif þennan morguninn. Mér er tjáð hér á staðnum að þetta sé refsingin fyrir því að hætta í vinnunni. Ég læt þetta samt ekki buga mig og reyni að þrauka út mánuðinn. Þá tekur nú við betri tíð með blóm í haga á nýjum og spennandi vinnustað.
Annars er nú ekkert merkilegt að gerast, stelpurnar ætla að yfirgefa mig um helgina og fara norður, ég veit ekki hvernig ég höndla það, ég kann ekkert að vera ein heima lengur. Er annars að fara á Chicago í kvöld með vinnunni, 80 manns ætla að storma héðan og svo á ball með Hljómum á Kringlukránni. Ég ætla nú bara að sjá til hvort ég læt sjá mig þar, vil helst ekki að það fréttist af mér á slíkri skemmtun, mannorðið sko. En það er best að hætta þessu, það les þetta jú enginn nema sambýlingarnir og ég held að þær viti þetta allt. En ef e-r annar hrökklast hingað inn, endilega skrifa e-ð fallegt og skemmtilegt, nú eða e-n klúran ósóma, sama er mér, látið bara í ykkur heyrast, Venlige hilsen Bergþóra
|
  posted by Kristin @ 1:49 e.h.


13.2.04  

 
Jæja !!! Its a bát fokking taem að einhver fari að blogga hérna :)
smeee smmee, hvern er ég að reyna að blekkja...????? Eina fólkið sem mun skoða þetta eru kellingarnar sem ég er að leigja með.......hummmm.... sorglegt. Er í alvörunni að pæla í Félagi einhleypra, sem eru með fundi á hverju fimmtudagskvöldi, því hvar eru einhleypu karlanir hérna í borginni sem reykja ekki sjálfvafðar rettur ??? Auglýsi hér með eftir þeim...ppplllíííííss gefið ykkur fram NÚNA ....takk. Auk þess er nú bara hollt að fara út úr húsi svona eitt kvöld í viku þ.e.a.s edrú.
Annars er ég að komast að því að líf einhleypra er hreint ekki eins auðvelt og ég hélt í minni barnslegu trú. Það eru fullt af reglum í samskiptum kynjanna sem þarf að læra og virða t.d. um hvenær senda má sms, klukkan hvað og hversu mörg þau mega vera. Einnig þarf að læra að fá ekki anginu ef manni er boðið eitthvað óvænt t.d. í bío...heheheh......, hvernig hafna eigi manneskju án þess að særa hana og síðast en ekki síst að "lesa" sms-in þ.e. að finna hina sönnu meiningu þeirra
En að lokum þá hreinlega verð ég að vera sammála Bubba, LÍFIÐ ER DÁSAMLEGT :)
|
  posted by Kristin @ 10:51 e.h.


4.2.04  
Powered By Blogger TM
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com