Helllúúúú
Ég held að það sé nú algjört möst að koma inn myndum frá því þegar við klifum Esjuna forðum daga......Bebba tölvunölli, komdu þér aftur í gírinn og finndu út hvernig við getum sett skemmtilegar myndir á þetta frábæra blogg okkar :)
Over and out, Skonjan
|
posted by Kristin @
9:43 f.h.
|
26.3.04  |
Gleymist nú alltaf að láta þess getið að ég heiti Bergþóra og kann á tölvur
|
posted by Kristin @
8:56 f.h.
|
25.3.04  |
Fékk þokkalegt sjokk í morgun þegar ég opnaði bloggið og fína kommentakerfið var horfið. Ég dó þó ekki ráðalaus, fór í aðra tölvu og viti menn, það var þar. Svo það var í raun tölvudraslið sem ég var í sem var klikkað en ekki ég, mikill léttir þar. Ég vona bara að þið sjáið þetta líka og kommentið endilega, látið vita ef það kemur ekki, ég verð þá að endurskoða þær hugmyndir að ég sé tölvusnillingur :)
|
posted by Kristin @
8:55 f.h.
|
 |
Ég vil bara nota tækifærið og ská mig hér með í thongsundið mikla í Skorradalsvatni næstkomandi sumar og skora á alla sem thong geta valdið að gera slíkt hið sama. Spurning um að gera sundið meira spennandi með því að efna til keppni um frumlegasta, efnisminnsta, mest blikkandi nú eða minnst kynæsandi thonginn???? I´m game og er þegar farin að hanna, sníða og sauma minn. Verið nú ekki minni menn stelpur, skráið ykkur og þið sjáið ekki eftir að hafa tekið þátt í eftirminnilegasta atburði sumarsins.
P.S. plís fari einhver að kenna mér á þessa broskalla, ég er að verða mér til skammar
|
posted by Kristin @
9:49 e.h.
|
24.3.04  |
Gúd dei..
Ég vil bara þakka hlý orð í minn garð! og það bara verður að viðurkennast að ég stóð mig bara nokkuð vel þarna sem peppari... Af orðum Skonju mætti samt halda að ég hafi mikla reynslu í þessum svokölluðu ástarmálum , sem er nokkuð mikill misskilningur.. en Hún stóð sig bara sjálf eins og hetja stelpan.. En svona fyrir mína parta verður að viðurkennast að ég stóð eins og klettur við hliðina á henni, bæði í Nammilandi og við ísbarinn í Snælandi
Það má alltaf treysta á Stínuna þegar kemur að því að feta hina erfiðu stíga nammilandsins, en fyrir leikmenn getur þar verið erfitt að rata!!!!! Endilega hafið samband ef ykkur vantar leiðsögumenn...
Þetta nammiát hins vegar (eins og þessir sem lesa þetta hvort eð er vita) leiddi af sér mikla magaverki og í heildina bara tóm leiðindi... en vell... það gleymist fljótt! Ég var allavegana orðin nokkuð spræk í átinu strax daginn eftir og kláraði þá úr pokanum í þynnkunni......
En ég fór aðeins á djammið á lau! fyrst á Ara í Ögri og svo döbbliners það var bara gaman.. ég stefni að djammi attur,, verrí sún!!!!!!..
En jæja gömlurnar mínar sem eru að lesa þetta
leiter... Bjartstínan
|
posted by Kristin @
2:39 e.h.
|
16.3.04  |
Góðan daginn góðir hálsar....og slæmir !
Undur og stórmerki áttu sér stað um síðustu helgi þegar Sonja litla lipurtá fór út úr húsi með öðrum en þeim 6 einstaklingum sem hún umgengst alltaf! Þessi merkilegi atburður olli að sjálfsögðu töluverðri streitu eins og gefur að skilja og þakkar Sonja hinum stórsnjalla einka-deiting þjálfara og ráðgjafa fyrir góðan stuðning og ráð. Húrra fyrir Stínu stuð !!!!! Hún lengi lifi....húrra ....húrra....húrraaaaaaaa. :)
Varðandi bandabrókasundið þá er einungis einn búinn að skrá sig MÍ :) og ein fyrirspurn borist...kommaaa svo stelpur, eruð þið kellingar eða ekki ????
Sonja sækó
|
posted by Kristin @
1:38 e.h.
|
 |
Það er nú varla að maður þori að blogga á eftir bloggkarlasnillanum hér á undan, ég kann þetta nebblega ekki en markmiðið er að læra það. Það er allavega á 7 ára planinu. En mér datt bara í hug að minnast á það hér hvursu himinsæl ég er í nýju vinnunni minni, ég er bara endalaust ánægð. Ekki svo að skilja að hinn vinnustaðurinn minn hafi sökkað, þessi er bara enn betri.
Það bólar enn ekkert á því að fleiri en sambýlingarnir láti ljós sitt skína hér, vonandi er vona á bragarbót í þeim efnum, þangað til, yfir og út, verkjastjórinn
|
posted by Kristin @
12:59 e.h.
|
11.3.04  |
hellú stínan er snillingur
Er að prófa mig áfram í að blogga með því að nota smælíkalla tú medafor! iff jú nó vatt æ mín
En allavegana! það er komin miðvikudagur! ekki slæmt! bara tveir vinnudagar fram að helgi.
fór í badminton í gær! tvíliðaleik með Camillu og Finn og svo Hjördísi sem er aðstoð sjúkraþjálfara! mjög gaman en augljóst að stínan er ekki í mikilli æfingu! einhverjir strengir að brjótast fram eftir því sem er að líða á daginn...
Jæja er að hugsa um að pósta og pöblisha og athuga hvort eitthvað af þessum brosköllum sjáist....
Leiter.. Bjartstína
 
|
posted by Kristin @
2:45 e.h.
|
10.3.04  |
Hæ gæ

|
posted by Kristin @
2:38 e.h.
|
 |
Hádilí dúdilí...
Margt og merkilegt hefur gerst frá því að ég skrifaði síðast og ber það helst að nefna veikindi, hokkíleik, útdrátt í rauðvínspotti og.. öhömmm.. það var kannski bara ekkert meira merkilegt.. ó vell en sem sé í stuttu máli= veikindin voru slæm en eru góð! Hokkíleikurinn var góður! karlmannlegur með tilheyrandi blóðslettum arrrggg... og rauðvínspotturinn gekk út! EKKI til mín... grenj grenj.. en Auður og Linda Aðal fengu sín hverja fjórar flöskurnar af veigum... Gott hjá þeim barasta segi ég! ekki vitundar öfundsjúk....
Gott hjá þér Sonja! kanna nýjar lendur! það er þá hægt að strika Skagafjörðinn út af kortinu og einbeita sér að nýjum miðum (ekki svo að skilja að ég hafi haft sérstakar væntingar varðandi Skagafjörðinn, en....).
Jæja við hérna í vinnunni erum að fara á 5stelpur.com á fös! mikil tilhlökkun og margar spurningar sem dynja á undirritaðri! hvað er um að vera í skemmtanalífinu almennt! er enn í tísku að vera með vængjagreiðslu! hvar er hægt að dansa og so videre... hvernig í ósköpunum er hægt að svara þessum spurningaflaumi svo vel sé? Þær verða bara að sjá það af eigin raun.. rífa út sparidressið og lett gó a little.. En annars held ég að þetta gæti verið mjög skemmtileg upplifun.. ég hlakka bara til;--)
Jæja kæru lesendur... ég bið ykkur vel að lifa og kveð með trega og söknuði..
Með virðingu og vegsemd
Bjartstína
|
posted by Kristin @
3:09 e.h.
|
8.3.04  |
Ich binn der Blogg Meister :)
Auf wieder sehen, Sonja der Blogg Meister
|
posted by Kristin @
3:07 e.h.
|
4.3.04  |
Guten tag alle zusammen !
Best að fara æfa mig í þýskunni svo ég geti nú e-ð spjallað við hann Klaus minn....hehehehhe. Slæmar fréttir mínir kæru einhleypu vinir, það er ekkert nothæft að hafa úr skagafjörden , nein dass sind alle sehr hässliche männer dort in dem Fjord.
Annars er ich með eine kenningu, hún er sú að rauntíminn líður veil schneller hérna í Reykjavík heldur en á Akureyri. ég held að ef ég hefði verið á Akureyri allan tímann sem ég er búinn að vera í Reykjavík dann were es noch october aber nich märz wie in Reykjavík. Tíminn líður so schnell að það er bara kominn miðvikudagur og næstum því fimmtudagur en það er svo rosalega kurts síðan það var föstudagur og ég auf dem weg nach Akureyri mit dem Flugzeug. Ókei boring.............
Lifið heil og munið að lífið er dásamlegt :) Songó í bongó blíðu
p.s. munið eftir íshokkíleiknum á laugardaginn og Hugarafli á Kaffi r-vík milli kl 13-16 á laugdag og svo er planið að tölta upp á Esjuna um helgina og .......
|
posted by Kristin @
3:09 e.h.
|
3.3.04  |
[ mán. mar. 01, 09:30:51 AM | Kristin Gudmundsdottir | edit ]
Hellú..
Jæja það er komin mars og sonna... merkilegt hvað tíminn líður hratt! dónt gett mí vrong! það er bara í besta lagi! þeim mun styttra er í sumarfrí og fleira skemmtilegt;-) jei jei jei... En ég semsé bregðaði mér norður yfir heiðar um helgina! það var bara frábært;-) Hitta familíuna og svo hitti ég hana Eddu vinkonu mína sem ég hef ekki hitt lengi en sakna mikið;-) Það var bara gaman hjá okkur! mikið drukkið og sungið! Við höfðum það hátt að aumingja konan á neðri hæðinni hjá Valdísi kvartaði undan okkur! En ég meina.. það er ekki eins og Valdís eigi afmæli á hverju ári! mjög mikilvægt að halda almenninlega upp á það á 4 ára fresti:-)
En je je.. Undirrituð er búin að koma af stað rauðvínspotti hérna í vinnunni, hún er búin að auglýsa hann mikið og leggja mikla áherslu á að allir komi nú með flösku af rauðvíni, hvítvíni eða öðru léttu víni (fer bara eftir smekk viðkomandi;-)) í vinnuna Í DAG!!! 1. mars.. En ekki nóg með það! fyrrnefnd undirrituð gleymdi svo barasta rauðvínsflöskunni sem hún var búin að kaupa í búrinu í Núpó, fyrir norðan sko! hafið þið heyrt annað eins! Þvílíkt og annað eins.. Undirrituð lummaðist svo lúpuleg í vinnuna í morgun (flöskulaus með öllu).. en var mjög fegin þegar hún komst að raun um að fleiri höfðu gleymt flösku og aðrir voru veikir! ekki svo að skilja að hún sé fegin því að fólk sé veikt.. en þið vitið.. jæja þetta var nú skemmtileg frásögn og margir örugglega orðnir spenntir að vita hvert rauðvínspotturinn fer svo að lokum.. En það verður að koma í ljós.. segi ykkur frá því um leið og úrslit liggja fyrir..
En Bebba er semsé að byrja í nýrri vinnu í dag.. spennandi að heyra frá henni í kvöld.. Gott ef hún var ekki pínulítið stressuð í morgun þegar hún gekk út um dyrnar.. en vonandi gengur bara allt vel! ég er reyndar viss um að það gerir það;-) En bebbí ef þú ert að lesa þetta bara gúd lökk...
Skonja hvenær rennur umsóknarfresturinn út varðandi bandabrókar-frelsis-sundið?? Eru eru einhver viðkvæði við því að skrá sig en skipta svo um skoðun.. hvernig virkar þetta?
Bestu kveðjur frá Bjartstínu...;-)
|
posted by Kristin @
10:43 f.h.
|
1.3.04  |

9:30 f.h.
|
 |