Italy there we went  

We are back home from Rimini!!!

Bloggarar

Valva beib


Ýmislegt

Unak.is

Broskallar


Veðrið a Rimini

The WeatherPixie


Gamalt blogg


 
Jæja jæja jæja... hvað segir fólkið??? datt í hug að blogga smávegis... its bin a long tæm jú nó... en það hefur svosem ekki margt á daga mína drifið frá því að ég var að babbla síðast en... ég fór senst til Akureyrar um síðustu helgi... skemmti mér hið besta.. var samferða foreldrunum norður og það var bara gaman.. minnti mig á árin þegar ég var eina barnið og sat ein í aftursætinu á ferðalögum.. áður en ég eigaðist bróðir sem var alltaf bílveikur og ferð frá akureyrar til reykjavíkur tók skuggalega langan tíma... en núna var þetta bara nokkuð snögg ferð.. kannski skýring á því en ég var syfjuð mjög og svaf helming ferðarinnar.. heyrði svo í foreldrunum pískra í framsætunum.. er hún sofandi?? ég held hún sé að vakna!! og svo framvegis.. ég þurfti virkilega að sitja á mér.. til að haga mér ekki eins og illa uppalin unglingsómynd sem er vanþakklát, viðskotaill og lætur allt fara í taugarnar á sér... sem ég er náttla ekki..;-/
Nú ef ég ákvað svo að opna augun.. til að kíkja á staðhætti og tjékka á hvort sjoppa væri í nánd.. brutust út mikil fagnaðarlæti!!! Nei!! er hún ekki vöknuð hún stína??? hvað segir þú?? svafstu vel?? veistu hvar við erum?? varst þú að fá sms?? svona spurningaflóð dundi á mér á nokkrum sekúndum.. og þeir sem til þekkja vita hversu hress ég er þegar ég er alveg nývöknuð.. höhumm.. en allavegana.. skemmtileg ferð.. bæði fyrir mig og þau;) þegar ég var loksins vöknuð fór ég að syngja með undir bláhimni, stína ó stína og fleiri góðum slögurum.. og við skemmtum okkur vel.. bara ég..mamma mín og pabbi minn... kannski eigum við eftir að fara í ferðalag á hverju sumri bara við þrjú!!! hehehe... Rúnar komin með kærustu og fjölskyldu og ég límd á mömmu og pabba... skæl skæl...
EEEn svo komum við á eyrina.. þar er alltaf ljúft að vera .. yndislegt veður.. hitti Önnu Lilju og stubb sem er bara sætastur í heimi.. svo var farið út á lífið á föstudagskvöldinu.. alltaf gaman að fara á djammið í góðu veðri... En stundum .. bara stundum samt efast ég sterklega um að ég sé frá Akureyri.. ég þekki hreinlega engan ... ekki á djamminu,, ekki á Glerártorgi.. jú ég segi það ekki kannast svona við hina og þessa.. hef séð marga áður.. en sorglegt samt sem áður... butt læf gós on..
En tíminn líður hratt... nú er komin miðvikudagskvöld.. ég er svo að fara aftur til Akureyrar um næstu helgi.. dísess... Anna Lilja vinkona er að skíra..jú jú það verður bara gaman... Við dísa skordal ætlum að fara á djammið.. gaman að fara með henni á djammið á eyrinni.. það eru einhver ár síðan við höfum djammað saman þar!
En nóg í bili....
hafið það gott elsku dúllurnar mínar.... bestu bestu bestu kveðjur KristínI Need A Big Hug
|
  posted by Kristin @ 10:18 e.h.


14.7.04  

 
Hi Ya
ég er að fara í sumarfrí og ég held að það á bara eftir að vera skemmtilega skrítið að vera að gera bara eitthvað á LAUNUM ......Yes!
Anyway þá er ég eftir 2 daga farin í fríið og stefni norður á bóginn......so farvellllllll
Skonja the skonster Wakka-wakka
|
  posted by Kristin @ 7:39 e.h.



 
Góðan daginn !!! Já já þetta er ég Skonjan...ótrúlegt en satt, eftir langt hlé.......komin aftur. Það fyndna er nú samt bara það að ég hef hreinlega ekki neitt að segja !!! vvvvííííí :) jú jú hvað er þetta, ég er að fara til Danmerkur í ágúst að heimsækja Dagnýju og bumbubúann og alla hina líka auðvitað, hlakka alveg rosalega til þar sem ég verð að segja að ég sakna hennar Dagnýjar minna doldið.....væri nú gaman að hafa hana hérna á landinu. Svo var ég á Laugarvatni í gær í vinnunni í sólbaði og svo var nú líka farið í ratleik, grillað og farið á árabát og kajak. En mest skemmtilegast er nú að segja frá honum litla frænda mínum honum Mikael Leon sem er sætastur í heimi og og og og ég er búin að passa hann og allt :) Alveg frábært lítið kríli. Annars er allt gott títt, við Stína stuð vorum að flytja um daginn. Fluttum nú ekkert langt, bara einni hæð ofar. Núna er ég að reyna aðlagast því að eiga herbergi sem er jafnstórt og fataskápurinn sem ég hafði á neðri hæðinni!!!! En þetta er voða kósí og ég er ekki búin að reka mig neitt voðalega oft undir súðinn......heheheheheheh. Kallamálin ganga vel en ég er samt ekki komin í sambúð, ólétt, búin að trúlofa mig eða fá mér tattoo á rssinn með nafninu hans....tek þessu nú bara nokk rólega.Hei jú auðvitað ....ég er á fara á Metallica á sunn kvöld.....vvvvvváááá held að það verði rosalegt og á Fame í kvöld...hehehehe Metallica og Fame!!!!!
Ok búin með bullið í bili
Over and out the Skúnster

|
  posted by Kristin @ 3:35 e.h.


2.7.04  
Powered By Blogger TM
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com