well well Stínan búin að yfirgefa landið tímabundið þannig að best að næsti fari að standa sig! Veit samt eiginlea ekki alveg akkuru við ættum að vera að gera þetta í siithvoru horninu því..hmmm.. its pretty much the same. ég er sem sagt enn húsgagn á Háteigsvegi og er bara ótrúlega sátt við það :)
Heyriði á miðvikudaginn gerast hlutirnir og ég get ekki beðið, ó mæ er að deyja úr spenningi hérna megin!!! já já aftur komin tími á get 2gether með kjúlla, gulum baunum, Abby, Dr. Weaver, Carter og öllum hinum skemmtilegu sætu læknunum í Bráðavaktinni!!! loksins loksins, er orðin nokkuð spennt að fá að vita hvort Carter sé fallinn, hvort Dr.hroki sé búin að missa fleiri útlimi, hvort Dr. Green muni ganga aftur og og og þetta er bara familí.
Endilega tékkið á síðunni hennar Stínu, hún er of course bara fyndin og skemmtileg!!! ;) En annars erum við hér á klakanum að bíða eftir þér Dagný, hlakki hlakk nú eru bara...what.. 3, ÞRÍR dagar til stefnu þangað til Bumbubúinn sýnir sig (eða hmmm vonum það allavegna, við getum eiginlega ekki beðið lengur eftir þér litli kútur) en so long flaggstång med nageltrång/ Kveðjur Millsan |
posted by Kristin @
10:56 e.h.
27.9.04
Hellú darlings! testing testing... mar er bara komin úr blogg-gír, kann ekki á þetta lengur. Best að fara að rifja upp gamla takta...gamla góða takta. Það var nú ekki leiðinlegt ;) að sjálfsögðu mætir mín á saumó kvöldið beljurnar ykkar, en þar sem ég er búin að sauma á krakkana mina, búin að hekla jólagjafirnar og prjóna á frænkurnar þá verður það eina sem ég verð með um hönd er Maxarinn góði og lúka af nammi. Við Stínan vorum audda að vísu búnar að semja um að síðasti í sukki væri á sunnudaginn síðasta þannig að ég kem bara með gulrætur og rófur plús Maxara (no sugar). Hehehhe hélduði það virkilega... ég klúðraði þessu strax í gær, dó, sá so obboslega girnilegt Kit Kat í bleika svíninu og ó mæ stóðst það ekki!!!! Kristjana Milla! well well er allavegna búin að játa syndir mínar þessa vikuna....en í næstu viku þá (hehehe). heyrðu er víst að eyða skattapeningum ríkisborgar Íslands með því að sitja hér og bulla í ykkur kæru vinir. verð að fara að gera eikkað (þegar ég er búin að redda stínu frá andlegu áfalli þar sem starsky og hutch kvöldið ruglaðist). skyldna kallar, heyri í ykkur sún. Haugur af ást frá mér, sjáumst í sukkinu á morgun Kveðja Milla pilla
Hellúúú..
stína hérna.. heyriði.. ma og pa eru svo bara alls ekkert að koma í borg tækifæranna.. pabbi náði sér í einhverja flensudruslu og treystir sér ekki... En well.. koma tímar koma ráð..
? um að halda þennan saumaklúbb eða .. ég er orðin spennt... hvað segið þið? skonja.. ertu að pakka þá eða leika við gústa eða eitthvað..? nei bara segi sonna.. annars er ég líka laus á mán.. bara segið til... til.. nei hmmm.. slæmt djúk
Hlakka til að melda mig inn næst og kannski heyra eitthvað fídbakk..
Ég neyðist til að vera boðberi slæmra frétta, saumaklúbburinn verður að frestast að óviðráðanlegum orsökum. Stofnendur Stínunnar eru væntanlegir í bæinn og kýs hún að eiga frekar kósý stund með þeim en að sinna heklinu. En þetta skilst nú allt saman og er klúbbnum bara frestað til mánudagsins 27. sept og er þá verið að tala um sama tíma,svona átta.
Ég verð strax vör við rífandi áhuga á saumaklúbbnum.....Ég myndi glöð hýsa fyrsta klúbbinn, ég sting uppá fimmtudeginum næstkomandi sem myndi leggjast út sem 23. september. Eigum við segja uppúr áttaleytinu?
Mí mí mí... ég vil ég vil.. vera með í saumaklúbbi.. má ég það.??... ég þarf nebbla að taka rassíu í heklinu... nei ég er ekki að hekla rass-síu.. taka rassíu (= hekla hratt á stuttum tíma)
Er fyrsti í saumó heima hjá þér bergþóra?? hvenær...??? ég er oftast laust sko..
fleiri melda sig inn!!!
Nei, viti menn, þetta er ekki Stínan sem skrifar heldur gamall draugur sem ekki hefur gripið í penna lengi. Kannski ég segi ykkur lífshlaup mitt undanfarnar vikur eða daga, bara svona ykkur til skemmtunar og mér til upprifjunar.
Ég fékk ansi slæmt tilfelli af heimþrá á dögunum, ég bara varð að fá að anda að mér norðlensku lofti ekki seinna en strax. Ég stökk þá upp í flugvél, eða fullé, eins og svoleiðis tæki útlegst á Arndísku. En ástæðan fyrir þessari miklu heimþrá var einmitt sú að ég hef ekki séð litlu Guðdótturina í háa herrans tíð. En skottan sú er nú ekki svo lítil lengur, farin að hlaupa um allt, hoppa jafnfætis og fara í kollhnís eftir pöntunum og tala stanslaust. Að vísu skilja ekki margir það sem hún segir en hún er virkilega að reyna.
Í fjölskylduna var einnig að bætast nýr meðlimur. Heitir hann Brandur og er köttur. Jú, mikið rétt, þeir sem þekkja mig eitthvað kannski vita að að ég er ekki mikið gefin fyrir dýr og sé í lagi ekki ketti. En þetta dýr er nú meira djöfuls rassgatið, mig bara langar í kött. Steini var semsagt að fá sér kött, þeir feðgar fengu að vísu ansi slæmt ofnæmi fyrir honum í fyrstu, voru síhnerrandi með sokkin augu og fengu svona vessaútbrot ef hann klóraði þá en þeir hörkuðu af sér, komust yfir það og nú er kötturinn hvers manns hugljómi.
Annað markvert hefur svosem ekki rekið á mínar fjörur, ég er að vísu dottin á bólakaf í hannyrðir ýmiskonar, með þrennt í gangi núna svo ég auglýsi hér með eftir saumaklúbbi, þeir sem hafa áhuga vinsamlegast látið í sér heyra. Ekki er nauðsynlegt að hafa með sér hannyrðir, einhver verður jú að taka að sér slúðrið og baksturinn.
Þangað til þið látið heyra frá ykkur bið ég ykkur vel að lifa, Bergþóran |
posted by Kristin @
2:12 e.h.
hæ hæ
hvað segir fólkið?? ég er bara hress.. og nokkuð endurnærð eftir ágætis helgi... Á föstudaginn fékk ég góða gesti í heimsókn.. Ólöfu vinkonu mína og Thibaut ektamann hennar.. þau komu á föstudagskvöld og þá voru opnaðir nokkrir öllarar... Dísa skvísa og Anna Lú.. komu svo líka og rifjaðar voru upp góðu stundirnar í Glerárskóla þegar við hjéngum allar fyrir utan Sunnuhlíðina í votviðri sem góðviðri.. Gúd tæms..;-)
En á laugardeginum var mér svo boðið í mat til ömmu hennar Ólafar, Ólafar. Það var mikil veisla og góð og graflax og fínerí .. nææææsss...
En .. í gær fórum við svo .. ég milfríður og skonjan á ljósmyndasýningu í perlunni.. hvílíkir menningarvitar... Það var ljósmyndasýningin en dag i Sverige.. eða í lauslegri þýðingu einn dagur í Svíþjóð.. nú .. á engilsaxnesku.. one day in Sweden... mjög skemmtileg sýning og endurspeglar í raun sænskt þjóðfélag og mannlíf.. fullt af myndum.. allar teknar sama daginn eða 3. júní í fyrra.. gaman að þessu og ef þið hafið ekkert við að vera, skora ég á ykkur til að kíkja...
En nú er ég að verða búin með helgarsöguna.. nei nei.. tók snilldarræmu í gær Cold Mountain.. bara góð.. bara falleg.. sorgleg.. hlægileg.. ohh...
Jude Law klikkar heldur ekki... jöööömmmmíííí...
En kannski meira síðar.. ætla að reyna að fara að vinna eitthvað...
Mánudagur til merkilegheita...
Stínan loggar sig út..
ÚÚúúúúúffffff.... það er lægð yfir landinu ég er bara hreinlega ekki að meika þetta... var bara geispandi og asnaleg í dag í vinnunni og svo reyndi ég að vera lífleg eftir vinnu og fór í IKEA og aðeins í bakarí eftir vinnu.. rosa hress... á yfirborðinu.. svo þegar heim kom smellti ég mér í pídjeisið og lagði mig aðeins. (steinrotaðist í 2 tíma...) úff púff... er núna aðeins að jafna mig á því...
En ég er búin að vera dáldið í sukkinu upp á síðkastið og nú finn ég að ég er gjörsamlega komin með nóg af sjálfri mér,, á mánudaginn (ég veit að ég er búi að segja þetta.. en) þá ætla ég að hætta að borða nammi.. nema á lau.. og hreyfa mig 4 sinnum í viku,, raunhæf markmið ekki satt?? vonandi virkar þetta á mig... og ég kem hress inn í veturinn,,, jei ekki alveg að höndla skammdegið svona... sé það alveg í hendi mér.. tralllalllala...
En vinkona mín hún dísa er að fara norður á EGO um helgina.. öfund öfund væri alveg til í að skella mér.. en ég er víst að fá skemmtilega gesti í staðinn sem er mikil snilld...
heyriði meira síðar....
lifið í lukku en ekki í krukku....
stínan kveður |
posted by Kristin @
7:39 e.h.
15.9.04
Komiði sæl
jæja stínan aftur komin á íslenska grundu... eftir velheppnaða ferð til baunalands.. Þetta var mikil rólegheitahelgi.. bara næs.. ég og Haukur höfum án efa heimsótt flesta bari (nei vó.. aðeins að ýkja) en nokkuð marga bari á stór kaupmannahafnarsvæðinu,, og merkilegt nokk þá var bjórinn bara mjög góður á öllum stöðunum.. Carlsberg special er mjög góður drykkur og mitt nýja uppáhald.. kalli spes eins og ég kalla hann er dáldið dökkur carlsberg og ég hef því miður ekki rekist á hann í búðunum hérna heima.. en vonandi verður á því breyting á komandi misserum.. En ég nenni ómögulega að skrifa ferðasöguna hérna á veraldarvefinn þannig að þeim sem fýsir í frekari fróðleik geta bara hringt í mig eða komið í heimsókn á háteigsveginn.. ég og sonja tökum öllum vel.. við höfum allavegana ekki hent neinum út ennþá.. þannig að bara fíl frí tú stop bæ..
Ég er að hugsa um að fara í bíó í kvöld og ég hlakka mikið til.. Myndin sem ég stefni á heitir Dís og er víst bara það fyndnasta.. ekki skemmir heldur að Gunnar vinur minn Hansson leikur í henni... slef.. slef.. bara snillingur og ekkert nema það!!! En það er náttla bara mitt persónulega álit,,.
Ég læt vita hvernig mér finnst myndin,.. næst þegar ég gef mér tíma til að blogga.. en nú er svo komið að það á að skrá niður í hvað mar eyðir hverjum einustu fimm mín í vinnunni.. prófa það kerfi í vikutíma til að byrja með.. örugglega ekki vel séð að vera að kíkja mikið á póstinn sinn eða athuga hverjir eru loggaðir inn á msn... hmmm..
En meira síðar...
stínan kveður (í bjórafeitrun frá helginni.. tæred end slípí..) |
posted by Kristin @
1:32 e.h.
13.9.04
Grítings..
wasöpp?? heyriði allt gott að frétta af búranum í háteigsveginum .. allavegana þeim sem er með herbergi sem er innangengt frá ganginu.. frá búranum sem er með herbergi innangengt frá stofunni held ég að sé líka bara allt gott að frétta.. veit ekki annað...
Eeeennn.. helgin var góð.. við milfírður ,, nei filmírður.. nei milfríður.. og þergbóra ,, beregbóra.. nei bergþóra.. fórum á ljósanótt í Kebblavík og kíktum á menninguna þar.. það var mikil snilld og margt að sjá... þar voru sýningar.. gallerý og ýmsar uppákomur.. þegar við vinkonurnar vorum orðnar svangar og þreyttar eftir alla menninguna og allar pælingarnar.. hugðumst við tylla okkur og fá okkur snæðing.. eenn nei nei!!! þá var bara allt fullt á öllum helstu kaffihúsunum og þá voru góð dár ríð ,, nei ég meina góð ráð dýr... en til að gera langa leiðinlega sögu stutta.. þá brugðum við á það ráð að fara bara heim til reygjavígur og fá okkur snæðing á kaffihúsi þar... og þannig fór um sjóferð þá!! málið er dautt... ekki orð um það meir..
En jæja svo fór Milfríður á djammið á lau.. og ég þurfti náttla.. eins og góðri vinkonu sæmir að veita henni andlegan stuðning í þynnkunni daginn eftir og við tókum spólu og keyptum nammi og mjólkurgraut frá nítjánhundruðfjögurtíuogfjögur.. ekta þynnkustemming.. jíha..
en jæks.. var að horfa á 70 mín og nú er að byrja the man show.. sem er merkilegt fyrirbæri.. ég ætla ekki einu sinni að fara út í hvað er verið að tala um núna .. en dáldil karlremba.. en ok.. verð samt að segja að þeir eru að tala um manpons núna.. sem eru karlmanns tampons.. gegn rasssvita.. úfff.. en allavegana ætla að fara að hætta þessu blaðri og standa upp og skipta um stöð..
... búrar lifi...
halló skralló...
er komin föstudagur eða hvað???? jíha.... vei... ekki slæmt huh?? en þessi vika flaug áfram með ógnarhraða.. hraða ljóssins hvorki meira né minna...en það er bara hið besta mál og nú eru bara 6 dagar þangað til að ég fer til baunalands.. sem er mikil snilld..
En ég og Milfríður gerðum eitt mjög sniðugt í gær.. við fórum í kringluna og frú milfríður keypti sér geðveikar gallabuxur.. rosa flottar.. og þá var nokkurn veginn takmarkinu náð.. en svo á leiðinni út með freshcetta pizzu í annarri hendi og léttpoppkorn í hinni tókum við eftir vél sem tekur af manni mynd og prentar út á límmiða.. nú AUÐVITAÐ þurftum við nauðsynlega að eiga mynd af okkur á límmiða eins og gefur að skilja... þetta er mjög skemmtilegt og ég vil bara nota tækifærið og skora á hina búrana að fara og fá sér límmiða.. við getum svo bíttað.. en þetta er mjög fyndið og okkur leið eins og 12 ára aftur.. en hinar stelpurnar sem biðu eftir því að komast að (við tókum dáldið langan tíma í þetta;-)) voru ekki mikið meira en það... hehehe... gamangamangaman....
En elsku dúllurnar mínar .. vonandi eigið þið góða helgi.. og sonja góða ferð til höfuðstaðs norðurlands... vildi að ég væri líka að fara búhúhú... en koma tímar koma ráð... það er víst ekki hægt að gera allt...
Ég kveð að sinni.. en á örugglega eftir að hripa eitthvað niður um helgina..
óver and át...
Kristín frá Holti
Halló halló..
ég sá að það var einhver búin að hripa eitthvað niður í commenta dálkinn varðandi það sem ég skrifaði í gær... ég veit ekki hver það er að svo stöddu máli þar sem viðkomandi skrifaði undir dulnefni.. Ég skora á fólk sem tjáir sig á veraldarvefnum að stíga fram!! ekki vera feimin og setjið nafnið ykkar undir.. ekki fela ykkur heima bak við lapptoppinn og flissa inn í ykkur...
Eeeeeeen auðvitað er ég að fara til útlanda og það er mikil snilld.. og svo er ég í fínni vinnu.. og ég horfði á spólu með vinkonu minni í vikunni ,, já auðvitað hef ég margt til að gleðjast yfir og síður en svo vil ég sýnast vanþakklát... höfum það á hreinu!!!!!! en þeir sem skrifa hér og bögga háæruverðuga Kristínu frá Holti eru vinsamlega beðnir að gera það undir nafni framvegis.. takk og bless
Kristín kveður að sinni... |
posted by Kristin @
2:34 e.h.