Mér hafa borist til eyrna tíðindi góð og sé ég mig knúna til að koma þessu áfram. Ég er semsagt að heyra útundan mér að í dag séu 20 manns búnir að melda sig í partý þann 7. maí. Það þýðir í fáum orðum: við þurfum fleiri stóla........ég sé annars fram á stuð stuð stuð og aftur stuð. Ég er langt komin með saumaskap og frágang á húlapilsinu og hawaii skyrtunni og býð nú bara eftir kokteilnum og sólinni. Það sem er soldið að skyggja á þetta teiti er sú staðreynd að þessa helgi er ég hryllilega bókuð á ráðstefnu á Grand Hótel og stendur hún yfir fös, lau og sun. Gaman að segja frá því að allir áhugaverðustu fyrirlestrarnir eru strax klukkan 8 á laugardagsmorgun....En ég finn e-ð út úr því
Hlakka bara til að sjá sem flesta 7. maí, helst með stóla með ykkur ;) kveðjur bergþóra |
posted by Kristin @
3:34 e.h.
29.4.04
halló testing testing... hvað er með þessi tákn sem koma alltaf þegar ég blogga... er bara aðeins að prófa hvort þetta sé að virka.. over and át... stína |
posted by Kristin @
8:40 f.h.
27.4.04
hell???.... hva? segist... j? endalaust kling kling ? t?ntunni... ekki svefnfri?ur fyrir ?essu... en samt er hennar herbergi alveg hinumeginn ? ?essari l?ka gr??arst?ru ?b??,, hehe en annars er bara gott a? fr?tta fr? st?nunni... bara hress og sona...ekkert a? segja ? rauninni...bla bla en j?ja... best a? fara a? dr?fa sig ?t ?r h?si ? morgun og upplifa eitthva? til a? skrifa ? bloggi?... jess ?ll d?itt..
b?j? kv.. st?nan |
posted by Kristin @
10:47 e.h.
26.4.04
KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING KLING........þetta er hljóðið sem heyrist frá eggjastokkunum mínu núna ! Ég á svo fallegan og yndislegan frænda að það er bara ekki hægt að lýsa því með orðum....:)
Kveðja frá Akureyri, Tante Sonja |
posted by Kristin @
8:10 e.h.
24.4.04
h? h?
gle?ilegt sumar b?rarnir m?nir... hafi? mikla ??kk fyrir veturinn, blessu? s? minning hans:) en n? tekur vi? betri t?? me? bl?m ? haga... jei ?a? er svo skemmtilegt a? ?a? s? komi? sumar.. geggja? ve?ur ? dag me? tilheyrandi brasi... grill, kaupa gask?t... allt ver?ur skemmtilegt og allir fullir af orku:) en vildi bara kasta ? ykkur kve?ju... b?j?..... kv. st?nan |
posted by Kristin @
12:11 f.h.
23.4.04
Gleðilegt sumar og takk kærlega fyrir veturinn :)
Túrílú Sonja
p.s. ég er búin að setja kaggann á sumardekkin og hann er bara asnalegur! |
posted by Kristin @
5:00 e.h.
22.4.04
Jæja þá er nú bara kominn tími á að Der Bloggmeister láta í sér heyra !!!!
Þótt að það sé í raun þriðjudagur er en eins og það sé fimmtudagur vegna þess að sumardagurinn fyrsti er á fimmtudaginn sem mundi verða eins og laugardagur, svo þarf reyndar að mæta í vinnu á föstudaginn nema fyrir þá sem verða í Þýskalandi þá ;) sem mundi verða eins og sunnudagur .....hhmmmmmm.......ég held samt að ég komi út í plús vinnulega séð að hafa sumardaginn fyrsta sem frídag, fyrir utan þá skemmtilegu staðreynd að þá er komið sumar...jibbbbííííííí.
Nú það sem er títt í mínu lífi er að ég er að fara dríbba mig í greiðslumat svo ég geti verslað mér 1/2 íbúð til viðbótar.........og ég er orðin væmnari en allt sem væmið er og það fyndna er að ég er hreinlega bara að fíla það :) Helstu afrek mín síðustu daga er að stara í sett af sætum ljósbláum augum og um leið vera með sólheimaglottið allan hringinn ! Þetta er nú bara nokkuð gott miðaða við að hafa lýst því opinberlega yfir að ég væri nú bara hætt að leita mér að kalli og ætlaði að leggja mig alla fram við að aðstoð Stínu í leit sinni að einhverju nothæfu.............sorry Stína ....en ég hefði nú bara verið vitlaus ef ég hefði sleppt þessu!
Það væri nú bara gaman að hafa smá grill-teiti til að fagna komu sumarsins....með bjór :)
Well nóg í bili af bulli, Skonjan mussy muss |
posted by Kristin @
1:33 e.h.
20.4.04
Góðan dag og gleðilega vinnuviku :)
Vil bara minna á kaffihúsaferð annaðkvöld, þe. þriðjudagskvöldið 20. apríl klukkan 20. Staðsetningin er Enrico´s sem áður var Kaupfélagið, neðarlega á Laugaveginum. Vonandi hafa allir fengið viðeigandi skilaboð en látið þetta endilega berast ykkar á milli. Veit ekki hvort ástæða er til að taka það fram hverjir eru boðnir, en það eru þeir sem telja sig hafa stundað nám í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri nokkur misseri og luku því námi með láði síðastliðið vor. Endilega mætið
I´m back Y´all!!! djöfull er ég hipp!!! og inn í dag.. engu lagi líkt.. en það er víst enn einu sinni komið sunnudagskvöld og hver veit hvað tekur við af sunnudagsmorgnum!!! ó já ó já mikið rétt það er MÁNUDAGSMORGUN !!!!kræst... þoli ekki mánudagsmorgna... öll vikan framundan... búhúhú.. en best að horfa á björtu hliðarnar það er nebbla frí á fimmtudaginn,, þá kveður okkur vetur konungur og sumarið heilsar.. jei jei jei... hvað eigum við nú öll að gera skemmtilegt á fimmtudaginn?? hömm.. hvað segið þig um grill og öl??? ef það verður gott veður það er að segja??? pælum í því... það þarf nú samt ekki að láta mig vita með löngum fyrirvara því ég verð ÖRUGGLEGA ekki upptekin;-) en vinkonur mínar tvær hérna gætu verið það dkjlsdfo.... þannig að endilega látið vita ef einhver hefur áhuga á fyrrnefndri hugmynd:-) takk takk
En annars er ég bara hress.. er að borða síðbúinn kvöldverð sem samanstendur af léttpoppi og maxara! mjög næringarríkur og góður kvöldverður.. jömmííí... mér var nebbla boðið í kaffi í dag til Dísu vinkonu og það kemur mar nú ekki að tómum kofanum,, át ég þar mikinn og hafði því ekki lyst á kvöldmat á kvöldmatartímanum, en það er tíminn svona kva skal segja milli 6 og 8 sirka en þá borða flestir sinn kvöldmat! en ekki ég í dag og vitna ég í fyrrnefnda útskýringu á því... en jæja nóg af bulli í bili....
Hafið það gott dúllurnar mína og gangi ykkur vel að sigrast á mánudagspúkanum... hann getur verið erfiður viðureignar... Hlakka til að lesa fullt af nýju bloggi á morgun... eitthvað verður mar jú að hafa fyrir stafni í vinnunni og eitthvað til að hlakka til ekki satt???????
Góða nótt dúllurnar mínar (og þá er ég ekki að meina eins dúllur eins og ég er að hekla núna, sem bæ ðe vei eru mjög sætar og smekklega samansettar!! og það er ég að hafa eftir öðrum nóta bene....)
leiter kv.. Stína |
posted by Kristin @
10:03 e.h.
18.4.04
heelllúúú..
stínan hérna, bara vildi kommenta á hvað mér finnst það skemmtilegt að aðrir en við þrjár séum farnar að kommenta í þar til gerðan kommenta dálk, sem eins og slíkur ætti auðvitað að gera, hentar einstaklega vel til að skilja eftir allskyns komment og aðfinnslur! náttlega bæði góðar og slæmar... En allt gott að frétta.. nema bara að ekkert er að gerast í mínu lífi... hvorki gott né slæmt.. dísess orðið pínu pirrandi sem leiðir það af sér óhjákvæmilega að ég verð bæði pirruð og bitur.. sem getur haft það í för með sér að ég næ ekki að samgleðjast þeim vinkonum mínu sem svífa nú um á rósrauðu skýi. Mér finnst bara eins og ég sé ein niðri á jörðinni og það rigni úr öllum þessum skýjum sem allir eru að svífa á þarna uppi....!!!! dísesss kræst.. náði ég að vera nokkuð heimspekileg þarna... endilega kommentið á það iff jú vill:-)
en gaman að þessu öllu.. ég hætti núna í vinnunni 5. maí í staðinn fyrir 7. maí jei jei jei...bara 14 dagar ettir... en ok ok ok ég skal hætta að tala um þetta ég veit að ég er orðin eins og biluð plata.. en jæja allir! ég ætla að fara að reyna að standa undir nafni sem Bjartstína því að ef að þetta heldur áfram þarf ég að fara að skipta um nafn,,, mér datt í hug svartstína en hvað finnst ykkur???? allar uppástungur vel þegnar;-) Góða nóttt dúllurnar mínar..
leiter bjartstínan.. |
posted by Kristin @
11:09 e.h.
15.4.04
Ég held það þurfi ekki frekari sannanna við, ég er geðsjúklingur. Aftur lagði ég af stað niður í Laugar löngu áður en haninn vaknaði. Frekari experimentasjónir með púlsgræjuna voru framkvæmdar og þykir mér þetta nokk sniðugur gripur sem ég hef eignað mér. Það vill svo skemmtilega til að það fylgdi leiðbeiningabæklingu með mínum sem er nokkuð aðgengilegur, svo er gripurinn líka svo tæknilegur að hann skynjar ef maður veit ekki hvað á að gera næst og leiðir mann áfram.
En ástæðan fyrir árrisinu í morgun er sú að von er á guðdótturinni og móður hennar í bæinn seinnipartinn og má búast við að ég þurfi e-ð að hafa ofan af fyrir þeim svo lítill tími gefst til svitamyndunar þá.
Sennilega best að sýna fram á smá vinnuframlag, kv. Bergþóra |
posted by Kristin @
11:39 f.h.
14.4.04
Svo hefði ég gaman af því ef fólk sem á hér leið um nýtti sér kommentakerfið sem ég svitnaði við að setja inn, mér líður eins og ég sé ein í Hvergilandi á þessu alneti.
Kv.B |
posted by Kristin @
3:00 e.h.
13.4.04
Best að byrja á því að óska Sonju innilega til hamingju með að vera orðin föðursystir, Sonja, TIL HAMINGJU.
Klukkan var nú ekki nema 05:30 þegar 3 vekjaraklukkur fóru af stað hjá mér í morgun, ég vall út úr rúminu og niður í Laugar. Hvað er betra klukkan sex að morgni en hlaupabretti undir fótunum og Slipknot í eyrunum. Það er ekki margt skal ég segja ykkur. Nema þá helst ef Ropejógagaurinn í rauðu peysunni mætir snemma á æfingu, sem hann btw. gerði í morgun svo so far er þessi dagur fullkominn. Hann var reyndar ekki í rauðu peysunni en honum fyrirgefst það nú alveg.
Ég var að prófa "nýja" púlsmælinn "minn" í morgun en mér tókst loksins að kría mælinn út úr bróður mínum um páskana. Það er í raun skammarlegt hvað það hefur tekið mig langan tíma, ég held að ég sé að missa takið á honum. Allavega hafa málin snúist við, hann er farinn að hafa allt af mér, en eins og gefur að skilja á það að vera öfugt, ég er jú yngst. Þetta er svona þrusu sniðug græja, segir manni allt það helsta og pípir svo bara ef maður er eitthvað kominn yfir hættumörk.
Þá var það ekki fleira, Sonja, enn og aftur til hamingju með prinsinn
ýkt klístraðar stuðkveðjur af Lundinum, Bergþóra verkstjóri á verkjasviði |
posted by Kristin @
12:47 e.h.
Jjjjiiiiiiibbbbbííííi, húrra húrra húrra. ÉG er orðin alvöru FRÆNKA !!!!! Í nótt fæddist litli sæti frændi minn sem þýðir að bróðir minn er orðinn pabbi........VVVááááááááááá . Fyrsta ömmubarnið í fjölskyldunni er semsagt mætt á svæðið og veldur svona stormandi lukku hjá öllum. Sögur segja að Krúsi jr. ku vera mjög líkur föður sínum....það hefði nú bara verið frábært ef hann kríli litli hefði getað hugsað sér að fæðast einum degi fyrr þá hefði náð að berja hann augum......í augnablikinu bíð ég spennt eftir myndum sem Stella systir ætlar að senda mér :)
Over and out i bili , Sonja frænka :) |
posted by Kristin @
10:16 f.h.
Páskavembill skrifar:
Getur verið að í æðiskasti mínu við að koma frá mér píslarsögunni að mér hafið láðst að óska landsmönnum, já eða þeim þremur sem lesa þetta, gleðilegra páska. Það er þá skjalfest hér með.
En nú eru páskarnir að renna sitt skeið og dásamlegur hversdagsleikinn að taka við aftur. Ég sé fram á að láta af viðstöðulausu áti og flytja lögheimili mitt niður í Laugar. Ég verð allavega þar bæði fyrir og eftir vinnu og í anda þess á milli. Svo ef einhver hefur áhuga á að eiga eitthvað samneyti við mig, þá verð ég þar. Það virðist nebblega sem góður ásetningur um grænmetisát og próteininntöku hafi fokið út í veður og vind einhversstaðar á leiðinni.
Ég virðist vera í svona hrottalegu formi að ég fékk ekki einn einasta streng eftir maraþonið í gær. Ég bjóst nú allavega við nokkuð góðum kúlurassi þar sem seinasti kílómeterinn er jú ansi mikið upp í móti, en nei, það er bara eins og ég hafi legið í baði og haft það huggulegt.
En þá bið ég bara að heilsa í bili, best að eiga smá kvaletítæm með foreldrunum áður en brunað verður í borgina, Venlige hilsen, Bergþóra bigbelly
Stundum fæ ég hugmyndir, sumar góðar, aðrar slæmar. Ég veit ekki í hvorn flokkinn páskahugmyndin mín myndi falla. Hún var semsagt sú að ganga frá Akureyri fram í Kristnes, tábrotin og þunn eftir ósköp lítinn nætursvefn. Þess ber að geta að þetta eru hátt í 12 km.
Nú, ég legg af stað og er komin ca. 50 metra þegar ég er orðin sársvöng og blaut í tærnar, en ég vil minnast á það hér að mér finnst fátt ógeðslegra en að vera blaut í tærnar. Gott hefði líka verið ef ég hefði lært af reynslu Áka í Esjugöngunni um daginn, en það er einmitt að leggja ekki af stað í langferð áður en þynnkuskitan hefur skilað sér.
Þá er ég komin að kirkjugarðinum, ca 11 km eftir af hardcore göngu. Mæti ég þá ekki föðursystur minni sem stoppar og finnst nú upplagt að ég grípi með mér pokaskratta sem innihélt 2 afmælisgjafir handa systkinabörnum mínum og umslög. Ég var svo rasandi bit á þessari bón að ég auðvitað tók pokann og hélt áfram göngunni. Þegar ég fór að hugsa betur sá ég auðvitað hversu asnalegt þetta var þar sem seníla föðursystirin var á leið í heimsókn til okkar seinna þennan sama dag. En ég hafði þá eitthvað að gera á leiðinni, ég gat pirrast, þar sem ég hafði ekki einusinni útvarp og hafði ekkert nema eigin hugsanir til að gleðjast yfir. Það vill mér til happs að ég hef endalaust gaman að sjálfri mér.
Mér þótti það nokkuð táknrænt að mér var í þrígang boðið far og í þrígang neitaði ég. Sem betur fer voru það gæsir sem görguðu á meðan en ekki hani sem galaði. Að öðru leiti sóttist mér ferðin vel, veðrið var með eindæmum gott og mér tókst held ég að sólbrenna. Það fólk sem keyrði framhjá gerði sér far um að ausa úr pollunum yfir mig og hafði ég nú endalaust gaman af því, eða þannig. Einn morðóður á stórum jeppa keyrði meira að segja svo nálægt mér að nú vantar á mig vinstri hliðina, rétt vona bara að það komi ekki að sök.
Ég lauk þessu þrekvirki á 2 klukkutímum sléttum og virðist ekki ætla að bera skaða af. Táin hangir enn á og ég fékk engar blöðrur. Næst fer ég þessa leið með kross á bakinu.
Svo mörg voru þau orð, guð veri með ykkur, Bergþóra |
posted by Kristin @
8:46 e.h.
11.4.04
Hellúúú...
er komin norður yfir heiðar og verð að segja... ó mæ god.... ekki slæmt!!! Rólegheit og næs... er bara að éta og meira að éta mar er nú líka eitthvað að reyna að hreyfa sig! fór í ansi góðann göngutúr í gær ég og mútta sko... og svo fór ég á Hvanndalsbræður í gær líka... Mikil skemmtun sem það var.. þeir eru bara fyndnir og skemmtilegir... mæli með þeim bræðrum til hinna ýmsu tækifæra...
Én jæja er að fara í mat og skreppa aðeins til ömmu gömlu og fara svo í kaffi örugglega einhversstaðar...
Leiter dúllurnar mínar og gleðilega páska... PAPAR annars á morgun... MIKIL tilhlökkun og mikil stemming jei jei jei.....
Hellúúúú gott fólk
Jæja Akureyri here i come!!! :)
Alltaf gaman að skreppa í sveitina í dekrið til múttu......og svo spillir nú ekki fyrir að krakkinn þeirra Markúsar bróður og Önnu ætlar nú bara að bíða með að fæðast þangað til að ég verð mætt á svæðið ;) skynsamur krakki þetta.
Pæliði í því...ég vann páskaegg í vinnunni í dag nr 5 frá NS, en þar sem ég er starfsmaður þá mátti ég ekki eiga það !!! Í fyrsta skiptið sem ég vinn eitthvað þá má ég ekki eiga það vegna þess að ég er ekki nógu geðveik....hummmm.....
Annars er ekkert títt nema hvað ég held að ég sé að gera Bebbu og Stínu nokk brjálaðar með mínu Sólheimabrosi sem virðist vera vera fast á andlitinu á mér þessa dagana. Ástæðan fyrir þessu svo mjög kjánalegu brosi er norðanpiltur nokkur sem hefur verið að afsanna allar mínar kenningar sem ég hafði um kalla !!
Nú er farið að styttast í sumarið og rétti tíminn til að fara plana kajaknámskeið, river rafting, Metallica tónleika og e-ð fleira skemmtilegt......vvvvííííííííííí þetta verður bara gaman.
Gleðilega páska og borðið fullt af súkkulaði, túrilú Sonja |
posted by Kristin @
1:13 e.h.
6.4.04
Síðar sama dag..
er enn í vinnunni! kræst.. ætlar þessi dagur engan endi að taka! ekki einu sinni emmessenn til að stytta sér stundir;-/ en ég er nú samt í matarpásunni minni! hálftími sem ég hef til að leika mér í tölvunni,,, en ég myndi náttla auðvitað ALDREI og þá er ég að meina ALDREI vera að væbblast í tölvu eða að skrá mig á veraldarvefinn án þess að vera í lögbundinni pásu, matarhléi eða frítíma af öðrum toga.... öhömmm..
En lítið hefur gerst frá því ég kvittaði síðast, kjúlli í matinn, jömmí.. bara góður! en annars varla nokkuð markvert..
Jæja! er ekki kominn tími á eitthvað nýtt hérna inn??? ég bara spyr? Eitthvað djúsí slúður! hver er að sofa hjá hverjum?? hver er ólétt?? hver vaknaði hjá .. og so videre...
En gaman væri nú ef einhver hefur verið látinn hlaupa 1. apríl, að hann kannski þá sjálfur, sem slíkur, segi frá því í nokkrum orðum. Eigi meira en eitthundrað orð! sjötta hvert orð í þriðju hverri línu skal vera 1. apríl! sá sem á bestu frásögnina fær að launum páskaegg frá Nóa síríus! jei... vegleg verðlaun í boði og allir að byrja að semja!!
En jæja! bara þrír vinnudagar í viðbót og svo tekur við ljúfa páskafrí... ummmm... ekki slæmt! Ég er SVO komin í þörf fyrir smá frí!
En helgin verður bara róleg að ég held.. klipping í kvöld, gettu betur, söngvakeppni framhaldsskólanna annað kvöld, og sonna bara rólegheit og næs..
Það verður nebbla örugglega djammað feitt um næstu helgi! því að hinir alræmdu PAPAR leika fyrir dansi í sjálfstæðishúsi Akureyringa (öðru nafni Sjallanum) á laugardagskvöldið og munu þeir án efa trylla lýðinn eins og þeim einum er lagið! Bara stuð stuð stuð....
En gott fólk.. gaman að þessu.. best að reyna að gera eitthvað til að vinna fyrir þessum krónum sem ég fæ....
Leiter mæ frends.. gangið hægt um ... sýnið varúð þegar kemur að .. passið ykkur á ... þið vitið..
EEEEENNNN njótið samt lífsins.. það er alltof stutt til að passa sig á öllu... jæja látum þetta verða viskuorð þessa föstudags 2.apríl 2004..
Bjartstínan;---)