Hæ hó jibbí jei og jiiibbbííí.. jei.. það er komin 18. júní!!! og það er föstudagur... heija heija heija heija heija heija heija heija hei.. Nei.. ein að tapa sér í gleði yfir komandi helgi;-) Ekkert nema gott um það að segja.. EN hvernig var 17. júní hjá ykkur?? ég skal segja ykkur hvernig minn 17. júní var.. þegar ég átti að vera að halda upp á afmæli lýðveldisins og strunsa stolt niður á austurvöll eða hvar sem reykvíkingar halda annars upp á 17. júní.. lá ég í sófanum og horfi á bíómyndir.. usss... það á ekki einu sinni að segja frá þessu.. en fyrst horfi ég á Mystic river.. þrusugóð ræma og svo horfði ég líka á dönsku gamanmyndina., með rómantíska ívafinu.. det eneste ene... hún er snilld.. mæli eindregið með henni;-) hún er bara sæt og skemmtileg..
Þannig að 17. júní 2004 er liðinn og ég gerði ekkert til að sýna hversu stolt ég er yfir að vera íslendingur í "frjálsu" lýðveldi og hversu barmafull ég er af ættjarðarást.. ég ætti að skammast mín.. ég verð að gera eitthvað til að bæta fyrir þetta.. mér dettur helst í hug að ég gæti lesið kvæði eftir gömlu skáldin... sem virtust ekki hugsa um annað en ættjarðarást og ísalandið.. en okkur nútímafólkinu til málsbóta þá var ekki komið neitt sjónvarp þegar þessir kappar voru að semja og skálda.. enginn veraldarvefur.. það að skrifa með bleki tók verulega langan tíma og allir höfðu rosa mikinn tíma til að hugleiða... og þar sem fáir höfðu farið til útlanda.. kemur það kannski af sjálfum sjér að auðvitað rituðu allir ljóð og kvæði um ísland... fjöllin.. jöklana og allt þetta.. Nei ég segi svona.. þetta er allavegana mín hugmynd ef einhver hefur betri hugmynd þá vildi ég endilega heyra hana.. En auðvitað væri nú gaman ef ég og fleiri kynnum betur að meta íslenska náttúru.. til dæmis í staðinn fyrir að hlunka okkur í sófann og glápa á endurtekið efni á skjá einum.. Nú er lag.. um helgina verður rölt út í náttúruna.. þó það verði ekki nema út í garð og sogað inn um nefið öll þau áhrif sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða... Vá hvað ég hlakka til... Kannski fara ljóðin að streyma.. hver veit?? Jæja gott umhugsunarefni fyrir helgina... Góðar stundir kæru landar...
Hafið það ævinlega sem best...
Kristin frá Holti |
posted by Kristin @
2:58 e.h.
18.6.04
Hellúúú´..
hvað er títt??? Það er orðið sóðalega langt síðan einhver bloggaði síðast.. EN eníveis.. ég er heldur alls ekki neitt viss um að einhver sé að lesa þessa vitleysu sem ég er að hripa niður.. en hvað um það.. það hefur margt gerst síðan ég bloggaði síðast.. í fyrsta lagi breggðaði ég mér á heimaslóðirnar og dvaldi á akureyrinni í nokkra daga í góðu yfirlæti.. nú svo byrjaði ég í nýrri vinnu.. geðveikt skemmtilegt jei jei.. mér lýst rosalega vel á mig hérna á reykjalundi.. allt að komast í gang og ég fæ mína fyrstu tvo skjólstæðinga á morgun.. einnig fór ég í sveitina um helgina og dvaldi í bústað hjá Millu snillu í skorradal.. við lögðum af stað fjórar.. þ.e ég Milla, Valdís og Sonja en við gistum bara þrjár.. sonja þurfi aðeins að fara heim og kíkja á kærastann.. þetta var alveg yndislegt og sól og rjómablíða allan tímann.. Mikið spilað, hlegið, ropað og prumpað.. geðveikt skemmtilegt hehe..
en takk fyrir mig í bili..
hafið það gott elskurnar
ykkar stína;-) |
posted by Kristin @
3:51 e.h.