Guðminngóður..
Ég vil bara biðjast afsökunar.. í fyrra bloggi mínu sagði ég að það væri kominn september... en ég vil leiðrétta þann mis-skilning.. það er ennþá bara ágúst.. reyndar 31.ágúst.. en ágúst engu að síður.. ég vona að mér fyrirgefist..
með bestu kveðjum
títtnefnd (hér á blogginu) Kristín frá Holti |
posted by Kristin @
3:06 e.h.
31.8.04
HALLÓ!!!!!! hvað er um að vera?? hvernig getur þetta gerst?? það er kominn september og sumarið búið!! búhúhú... ég skil þetta ekki og ég sem er ekki búin að gera baun í sumar... alltaf eins og ég væri að bíða eftir einhverju.. sem svo aldrei kom.. mar ætti að skammast sín.. áður en ég veit af verð ég komin á Hlíð og hugsa ..
jæja nú er ég komin á Hlíð (rökrétt hugsun).. nú er kannski fullseint að fara í útilegur og ferðalög.. mjöðmin þolir illa kulda og svo æsist gigtin upp um leið og ég fer út fyrir bæjarmörkin.. ég get heldur ómögulega verið að fara.. ég þarf að pissa á 20 mín fresti og svo framvegist!!! dísessss... úúú verð að fara að gera eitthvað í mínum málum fyrst ég get ekki sett tímann á hóld!!
En nú er heldur betur að styttast í köben ferðina og það verður nú aldeilis gaman.. ég get allavegana státað mig af því að ég er að dríbba mig til köben.. og það eru bara 9 dagar;-)júhú!!
Sá snilldarræmu í gærkvöldi.. Kill Bill 2.. hún er svo súr.. að hún er geðveikt svöl.. mæli hiklaust með henni.. auðvitað verður mar að sjá nr 1 fyrst.. og kíp an ópen mænd..
En tarantino klikkar ekki.. (sjá hans fyrri verk.. fremst í flokki er þar án efa Pulp fiction..) en ok ok.. játa það samt á mig að ég er ekki búin að sjá margar myndir, en þær sem ég hef séð hafa verið góðar.. og hana nú..
En ég vil nota þetta tækifæri til að hvetja til friðar á jörðu.. og auðvitað skora á hina búrana til blogga.. bloggiði búrar bloggiði!!
en þangað til næst
hafið það sem best;-)
Kristín frá Holti
halló halló..
hvað segir mannskapurinn?? Er orðin frelsuð af megrunaráróðri sem er búinn að dynja á mér síðastliðnar klukkustundir. Fyrst horfið ég á kastljós og þar var verið að tala við gaurinn sem gerði myndina supersize me.. sem borðaði ekkert nema mcdonalds í mánuð... hann þyngdist sumsé um 11 kg.. kólesterólið hækkaði mikið.. lifrin fylltist af fitu og leit út eins og hjá versta drykkjumanni..og fleira og fleira.. Það er sem sé ekkert sniðugt að vera að borða allt of mikinn makka!! Nú svo var þátturinn Ed þar sem feiti strákurinn er búinn að fara í megrunaraðgerð og búinn að leggja mikið af.. Núna er ég svo að horfa á þátt um Atkins kúrinn.. úff úff..
ég held að það sé bara ein leið fær þ.e. -- fara fram í eldhús og útbúa.. hehe ...nei nei bara borða hollt.. ávexti grænmeti og hreyfa sig.. hætta í skyndibitum og ég held bara að sleppa Atkinsinum... En fyrst það er ekki annað að gera.. af hverju í ósköpunum er þetta svona erfitt?? mér er spurn.. En bla bla.. vonandi er allt gott að frétta hjá ykkur.. ég var boðin í mat í gær til dönsku vina minna Camillu og Finn. Þau eru að fara til danmerkur aftur á laugardaginn ég fékk voða fínan laxafisk og fínerí.. ótrúlegt hvað þau eru búin að ferðast um landið í sumar.. ég var að skoða myndir og ég held hreinlega að það sé ekki sú þúfa eða það barð sem þau hafa ekki komið á.. gott hjá þeim.. vonandi á maður þetta eftir á næstu árum.. ef mar hefur nú einhvern með sér sem hefur gaman að ferðast gaman að því..
En heyriði .. ég bið ykkur vel að lifa.. og býð auðmjúklega góða nótt
Kveðja frá stínu spikínu |
posted by Kristin @
8:51 e.h.
25.8.04
Æ elsku dúllan mín.. (þ.e búri nr 3) só sorrí.. bara grín bara grín!!!
Ekkert persónulegt... gerðu bara grín að okkur í staðinn.. skora á þig..
kveðja frá stínunni sem var bara að spauga |
posted by Kristin @
12:56 e.h.
24.8.04
Guten Abend :)
Þriðji Búrinn mættur til að blogga.... þetta ku víst vera besta leiðin til að tjá mig þessa dagana þ.e. með skrifmáli! Það er ekki nóg með að ég heyri frekar illa sökum þess að ég hef einungis eina heila hljóhimnu í kroppnum heldur virðist fólk eiga líka erfitt með að skilja mig þar sem ég hef nælt mér í einhverja kvefpest og er nokkuð hás. Ég verð nú bara að segja að ég hef fengið mig full sadda af háðglósum og ómerkilegum athugasemdum frá hinum búrunum, samstarfsfólki og kalli......VILJIÐ ÞIG GJÖRA SVO VEL AÐ HÆTTA ÞESSU....mér finnst ekkkert fyndið að þurfa að segja sama hlutinn tvisvar eða þrisvar aftur bara vegna þess að fólk hlær svo mikið þegar það heyrir mér......ég veit að ég heyri illa en ég heyri yfirleitt vel þegar fólk er að apa HA! eftir mér.....ÉG GET EKKERT AÐ ÞESSU GERT.....grenji grenji.....
Plís verið góð við mig ;/
Over and out..........venlig hilsen, auf wiedersehen... u nóv hú
Góða kvöldið
stínan hérna.. jæja jæja bara komið föstudagskvöld og vonandi allir í góðum fíling???? Ég er það allavegana.. jíha angale angale ebba ebba..
Þessi vika er búin að vera dáldið strembin.. ég var að byrja að kenna streitu og lífshætti.. ég var örugglega stressaðasta manneskjan á staðnum.. en þetta gekk bara fínt:) Nú er bara helgi framundan með menningarnótt og látum.. mikið gaman og mikið stuð..
hummm ég er alveg heiladauð og dettur ekki í hug ein einasta frumleg hugsun
vonandi get ég skrifað eitthvað sniðugt eftir helgina...
góða helgi búrarnir mínir;---)
kveðja frá stínu
jæja komið þið nú öll blessuð og sæl
mikið er gaman að sjá hversu margir hafa safnast saman hér fyrir framan viðtækin til að fylgjast með þessari fyrstu útsendingu... og þú þarna í rauðu peysunni.. já!! þú .. ég ætla bara að bjóða þig hjartanlega velkomin(n) .. réttu nú aðeins úr bakinu og komdu þér vel fyrir... nú hefst útsendingin..
Jæks .. eitthvað er mér nú farið að förlast.. þið verðið af afsaka það er bara orðið svo langt síðan ég hef bloggað eitthvað og strax þegar ég ætlaði að byrja á að skrifa eitthvað viturlegt.. kom bara tóm steypa.. en þetta hins vegar minnir mig á þegar ég var að horfa á einhvern þátt með Halla og Ladda þegar ég var bara kjúklingur (kjúklingur=lítil stelpa) og þá sögðu þeir þetta einmitt.. Hey þú!!! já þú... þarna í rauðu peysunni... hvað ertu að gera.. farðu og.... og svo framvegis.. og ég náttla hélt (í minni rauðu peysu) að þeir gætu hreinlega kíkt á mig í gegnum sjónvarpið og að þeir væru að tala við mig... hélt það í þó nokkuð langan tíma... jafnvel ekki alveg sannfærð enn að þeir hafi ekki verið að tala við mig persónulega.. hmmmm en allavegana... góð saga...
Kannski að mar taki skurk í bloggmálum og farið að hripa eitthvað markvisst niður og líma það á veraldarvefinn fyrir gesti og gangandi...
En allt er gott í borg tækifæranna... bara búið að vera sól og blíða og ekkert nema það... ég er líka að fara í smá helgarferð til köben .. bara eftir 3 vikur... jei..hlakka bara til:)
En heyriði.... best að byrja rólega... ekki of mikið bull í einu...
Hafið það sem best öllsömul
með virðingu og vinsemd
Kristín frá Holti
jújú hér sé stuð og fullt af lífi....mar bara búinn að vera í sumarfríi(alveg í 4 daga) og í sólbaði þess á milli, hef ekki náð upp neinum ítalíulit en er orðin svona nett mórauð í framan :)
Í fréttum er nú mest lítið, ekki er maður óléttur eða giftur ennþá og veit ég reyndar ekki um neinn sem svoleiðis er ástatt fyrir to tell the trouth, en ef einhver veit eitthvað meira en ég endilega lát í sér heyra.
Er eiginlega búin að gleyma hvernig á að fara að því að röfla endalaust um ekki neitt á veraldarvefnum svo ég held ég hætti því bara hið snarasta. Endilega farið að setja á ykkur bloggbrækurnar og bloggið sem aldrei fyrr. Já meðan ég man, ég er nú hissa á Stínu að vera ekkert búin að blogga, það er nú helst hún sem hefur eitthvað fréttnæmt að segja...eða hvað? ;)